
Fjárhagsleg velgengni viðskiptavina Íslandsbanka er eitt af lykilloforðum bankans. Með því að gefa út fræðslubækur um hvernig er best að ávaxta sitt pund leggur bankinn sitt af mörkum til að tryggja það.
Verðbréf og áhætta fjallar um ávöxtun peninga í verðbréfum. Fjallað er um mismunandi tegundir verðbréfa, verðbréfasjóði og erlenda sem innlenda markaði en þungamiðja bókarinnar felst þó í umfjöllun um ávöxtun og áhættu og hvernig þessir tveir þættir mynda saman grunninn að ávöxtun fjármuna almennt.
Bókin kom út árið 1994 og var einskonar sjálfstætt framhald af Fjármálahandbók VÍB kom út tveimur árum áður.
Hlutabréf og eignastýring lýsir helstu aðferðum við val á hlutabréfum og eignastýringu. Í bókinni er dregið saman hvernig hinn almenni fjárfestir getur nýtt sér þessar aðferðir við ávöxtun peninga til að ná settum markmiðum allt eftir því hvort hann ákveður að taka litla eða mikla áhættu.
Bókin kom út árið 2003 og koma við sögu margir af frægustu fjárfestum 20. aldarinnar. Sagt er frá frábærum árangri þeirra og heilræðum til annarra fjárfesta, en einnig skondnum atvikum í lífi þeirra.