Fagfjárfestaþjónusta

Fagfjárfestaþjónusta Eignastýringar

Fagfjárfestaþjónusta Eignastýringar ersérsniðin þjónusta fyrir lífeyrissjóði, aðra smærri sjóði, stofnanir ogfyrirtæki. Okkar reyndustu sérfræðingar íeignastýringu og þjónustu sjá um að klæðskerasníða þjónustuna að hverjumog einum viðskiptavini.

Þjónusta okkar við fagfjárfesta felst í

  • Mótun fjárfestingarstefnu að teknu tillliti til markmiða um ávöxtun og áhættuþols
  • Virkri stýringu eignasafnsins innan þeirrar fjárfestingarstefnu sem hefur verið valin. Faglegt ferli yfir fjárfestingarákvarðanir er forsenda þess að ná hámarks árangri
  • Áhættustýringu og eftirliti með áhættuþáttum tengdum verðbréfaeign
  • Reglulegum yfirlitum og skýrslum yfir ávöxtun og árangur. Við berum saman árangur okkar við viðmiðunarvísitölur, og samkeppnina.  
  • Heildarlausn hvað varðar vörslu, greiðslumiðlun, innheimtu, fjárhagsbókhald og skýrslugerð yfir innlend og erlend verðbréfasöfn
  • Persónulegum tengslum við okkar reyndasta og besta starfsfólk í eignastýringu og þjónustu.
  • Samstarfi við eitt helsta og virtasta eignastýringar- og sjóðafyrirtæki heims The Vanguard Group
  • Trúnaður og traust. Eignastýring Íslandsbanka byggir á gömlum merg frá VÍB og reynslan hefur kennt okkur að leggja ríka áherslu á traust og trúnað í samskiptum okkar við viðskiptavini.

Þú getur haft samband viðFagfjárfestaþjónustu Eignastýringar í síma 440 2950.


Hafðu samband