Einkabankaþjónusta

Einkabankaþjónusta Íslandsbanka er víðtæk sérfræðiþjónusta sérstaklega sniðin að þörfum efnameiri viðskiptavina sem vilja aðstoð sérfræðinga við ávöxtun fjármuna. Þetta er þjónusta sem hentar þeim sem hafa ekki tíma eða aðstöðu til að meta og greina fjárfestingartækifæri á markaðnum. Lögð er áhersla á persónulega þjónustu og markvissa stýringu á eignum viðskiptavina í innlendu og alþjóðlegu umhverfi.

Þinn eigin viðskiptastjóri

Viðskiptavinir eru í samskiptum við fjármálaráðgjafa sem veitir fjármálaráðgjöf og aðstoð hvenær sem viðskiptavinum hentar. Ráðgjafinn leitast ávallt við að hafa skýra og góða heildarsýn yfir fjármál viðskiptavinar og aðstoðar við að ákvarða eignasamsetningu og fjárfestingarstefnu, út frá áhættuþoli og arðsemiskröfu viðskiptavinar. Viðskiptastjórinn er tengiliður viðskiptavinar við bankann og hefur þannig aðgang að víðtækri þjónustu bankans á sviðið fjárfestinga og fjármála.

Einkabankaþjónusta Íslandsbanka felur m.a. í sér eignastýringu, fjárfestingaráðgjöf, fjármálaráðgjöf og almenna bankaþjónustu.


Hafðu samband