Almennt
1.1.
Vildarklúbbur Íslandsbanka er tryggðarkerfi fyrir viðskiptavini
Íslandsbanka þar sem viðskiptavinum er umbunað fyrir fjölbreytt umsvif
viðskipta við Íslandsbanka.
1.2. Vildarklúbburinn hóf göngu sína 8. maí 2007.
Meðlimir 2.1. Virkir viðskiptavinir í Vildarþjónustu Íslandsbanka.
2.1.1.
Virkir viðskiptavinir uppfylla almenn skilyrði í Vildarþjónustu
Íslandsbanka með lágmarksfjölda skilyrta þjónustuþátta, þar af er gerð
krafa um launareikning, kreditkort og virkan Netbanka.
2.2. Aðeins einstaklingar geta skráð sig í Vildarklúbb Íslandsbanka en ekki fyrirtæki eða stofnanir.
Skráning í Vildarklúbbinn 3.1.
Viðskiptavinir skrá sig í Vildarklúbbinn á vef Íslandsbanka eða með því
að hafa samband við þjónustuver eða útibú Íslandsbanka.
3.2. Við skráningu fá viðskiptavinir nýtt kreditkort sem tengist Vildarklúbbnum.
3.3. Ekkert gjald er tekið fyrir aðild í Vildarklúbbi Íslandsbanka.
Söfnun Íslandsbankapunkta 4.1.
Meðlimir safna Íslandsbankapunktum með því að vera í fjölbreyttum
viðskiptum við Íslandsbanka og með virkt Vildarklúbbskreditkort (sjá
nánar í 4.1.2.1.)
4.1.1. Skilyrði er að vera í einni af
vildarþjónustum Íslandsbanka (Vild, Gullvild, Platínum eða Námsvild) með
lágmarksfjölda þjónustuþátta.
4.1.1.1. Lágmark 3 þjónustuþættir fyrir Vild og Námsvild, 5 þjónustuþættir fyrir Gullvild og 10 þjónustuþættir fyrir Platínum.
4.1.1.2. Ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt geta einstaklingar stofnað Vildarklúbbsreikning.
4.1.1.3.
Hver meðlimur getur aðeins haft einn punktareikning opinn og ekki er
hægt að sameina punktareikninga til að hækka heildarpunktafjölda.
4.1.1.4.
Sambýlisfólk og hjón geta uppfyllt þessi skilyrði í sameiningu en geta
þá bara verið með einn Vildarklúbbsreikning saman.
4.1.2. Punktar safnast af innlendri notkun Vildarklúbbskortins, þó ekki erlendri færsluhirðingu innanlands
4.1.2.1.
Notkun Vildarklúbbskortsins þarf að vera að lágmarki 20 þúsund krónur á
mánuði til að safna Íslandsbankapunktum fyrir aðild að Vildarþjónustu
og kreditkortanotkun.
4.1.3. Til þess að fá Íslandsbankapunkta fyrir
Eignastýringu og Einkabanka þarf að vera í virkri Eignastýringar- eða
Einkabankaþjónustu.
4.1.4 Mest er hægt að fá Íslandsbankapunkta
fyrir tvö ný bílalán á ári hjá Íslandsbanka Fjármögnun. Punktarnir eru
greiddir út í febrúar á hverju ári fyrir undanliðið ár. Skilyrði er að
lánið sé í skilum þegar punktarnir eru greiddir út.
4.1.5 Veittir eru punktar fyrir viðbótarlífeyrissparnað hjá Lífeyrisþjónustu Íslandsbanka.
4.1.5.1
Íslandsbanki áskilur sér rétt til að bakfæra greiðslu í formi
Íslandsbankapunkta sem veittir eru fyrir flutning séreignarsparnaðar til
Lífeyrisþjónustu Íslandsbanka sé sparnaðurinn færður aftur frá
Íslandsbanka innan tveggja ára.
4.2. Punktastaða er reiknuð mánaðarlega og er þá athuguð viðskiptastaða meðlima við Íslandsbanka og samstarfsaðila klúbbsins.
4.2.1.
Íslandsbanki hefur heimild til að endurreikna punkta ákveðins tímabil
ef upp koma skil á vöru til söluaðila eða annarrs konar bakfærslur.
4.3. Punktastaða er birt á punktayfirliti meðlima í Netbanka Íslandsbanka.
Fyrning Íslandsbankapunkta 5.1. Ónýttir punktar fyrnast fjórum árum eftir að þeim er aflað en fyrning er ávallt í lok hvers árs.
5.1.1. Innleystir punktar eru ávallt þeir elstu hverju sinni.
5.1.2.
Ef viðskiptavinur ávinnur sér 10.000 punkta á ári frá 2007 til 2010 en
innleysir aðeins 5.000 punkta á sama tímabili munu 5.000 punktar frá
árinu 2007 fyrnast þann 31. desember 2011.
5.2. Punktarnir eru eign
Íslandsbanka þar til punktainnlausn á sér stað og áskilur Íslandsbanki
sér rétt til þess að taka til sín uppsafnaða punkta ef meðlimur
Vildarklúbbsins er óvirkur í meira en sex mánuði án sýnilegrar ástæðu
eða ef meðlimur Vildarklúbbsins hefur hætt viðskiptum við Íslandsbanka.
Innlausn punkta 6.1. Meðlimir Vildarklúbbsins verða að vera virkir viðskiptavinir Íslandsbanka þegar punktainnlausn á sér stað.
6.1.1.
Til að vera virkur viðskiptavinur þarf meðlimur að uppfylla skilyrði
Vildarþjónustu Íslandsbanka með lágmarksfjölda þjónustuþátta.
6.2. Punktainnlausn er framkvæmd í Netbanka Íslandsbanka en einnig geta þjónustufulltrúar aðstoðað við punktainnlausn.
6.2.1. Einungis meðlimir Vildarklúbbsins geta innleyst Íslandsbankapunkta í eigin þágu.
6.3.
Íslandsbankapunktum má ráðstafa í vöru úr vörulista Vildarkúbbsins á
punktaverði sem gefið er upp hverju sinni. Vörulistann má finna í
Netbanka Íslandsbanka.
6.3.1. Fjárhagsleg endurgreiðsla í peningum á
sér aðeins stað einu sinni á ári. Hægt er að óska eftir peningainnlausn
í febrúar ár hvert og verður upphæðin síðan borguð út í byrjun mars.
6.3.2.
Hvorki Íslandsbanka né samstarfsaðilum Vildarklúbbsins er heimilt að
skipta vöru vörulistans í pening, óski meðlimur Vildarklúbbsins þess,
heldur á fjárhagsleg endurgreiðsla sér stað einungis einu sinni á ári.
6.3.3.
Punktainnlausn með öðru sniði en endurgreiðslu er hægt að framkvæma
hvenær sem hentar viðskiptavini og samkvæmt útfærslum Íslandsbanka
hverju sinni.
6.3.4. Íslandsbanki áskilur sér rétt til þess að breyta bæði vöru og verði vörulistans hvenær sem er.
6.3.5.
Afslættir og aðrir söluhvatar eru ávallt innifaldir í verði vörulistans
og skulu ekki reiknaðir til viðbótar því verði sem vörulistinn segir
til um.
Úrsögn meðlima
7.1. Meðlimir geta sagt sig úr Vildarklúbbnum hvenær sem er með úrsögn til Íslandsbanka.
7.2.
Íslandsbanki áskilur sér rétt til uppsagnar meðlima úr Vildarklúbbnum
og fella úr gildi punktasöfnun meðlima ef Íslandsbanki getur sýnt fram á
brot á reglum klúbbsins, reglum um meðferð greiðslukorta eða öðrum
reglum sem tengjast starfsemi klúbbsins og hans samstarfsaðilum.
Ýmislegt 8.1.
Íslandsbanki áskilur sér rétt til þess að breyta fyrirkomulagi og
skilyrðum Vildarklúbbsins hvenær sem er. Íslandsbanki áskilur sér líka
rétt til þess að binda endi á Vildarklúbbinn með tilkynningu á vef
bankans ef upp koma óyfirstíganlegar og óviðráðanlegar aðstæður, þar með
talinn réttur meðlima til að innleysa punktasöfnun sína.
8.2.
Íslandsbanki er ekki á neinn hátt ábyrgur fyrir vöru samstarfsaðila
Vildarklúbbsins. Ef upp koma deilumál varðandi frammistöðu keyptrar vöru
skulu meðlimir eiga það beint við söluaðila vörunnar án milligöngu
Íslandsbanka.
8.3. Ábendingar eða kröfur, ef einhverjar, skulu
sendar skriflega til Markaðssviðs Íslandsbanka, Kirkjusandi, 155
Reykjavík innan mánaðar eftir að upp kemur deilumál. Íslandsbanki tekur
afstöðu til allra ábendinga eða krafna innan 14 daga eftir að þær berast
og skal afstaða Íslandsbanka vera endanleg og óáfrýjanleg.