Fastar greiðslur húsnæðislána í erlendri mynt

Þangað til niðurstaða liggur fyrir af hálfu Hæstaréttar eða löggjafans um lögmæti tiltekinna lánasamninga bankans í erlendri mynt, hefur bankinn ákveðið að bjóða lántakendum með erlend húsnæðislán það úrræði að mánaðarleg afborgun lánsins nemi sem svarar kr. 5.000 fyrir hverja upphaflegu milljón lánsins. Þetta tímabundna úrræði gildir til 31.03.2011 eða þar til niðurstaða skýrist fyrir dómstólum og er lántakendum að kostnaðarlausu.

Hægt verður að sækja um þessa greiðslutilhögun frá og með 8. júlí með því að hringja í þjónustuver í síma 440 4000, í næsta útibúi og á vef bankans.

Sækja um fastar greiðslur

 

 

Spurt og svarað

Hvers vegna er verið að koma með þetta nýja úrræði núna?

Ástæðan fyrir þessu úrræði er sú óvissa sem ríkir um lögmæti húsnæðislána í erlendri mynt. Þetta er bráðabirgðalausn þangað til Hæstiréttur hefur skorið úr um lögmæti og endurreikning mismunandi íbúðalána ef slíkt verður niðurstaðan.

Þarf að undirrita einhver skjöl til að fá þetta úrræði?

Já undirrita þarf skjal sem bankinn útbýr eftir að viðskiptavinur hefur sent inn umsókn.

Hvað verður um mismuninn af greiðslunni miðað við fasta krónutölu og það sem ætti að borga ef ég væri ekki að nýta mér úrræðið?

Mismunurinn leggst við höfuðstól lánsins og lengist lánið sem því nemur. Ef viðskiptavinur á að greiða minna en fasta krónutalan segir til um þá styttist lánið sem því nemur. Rétt er að ítreka að úrræðið er valkvætt og því þurfa ekki allir viðskiptavinir með húsnæðislán í erlendri mynt að nýta sér það.

Af hverju er miðað við að afborgun af erlendum íbúðarlánum sé 5.000 krónur af hverri milljón?

Þetta er viðmiðunartala sem bæði lántakandi og lánveitandi ættu að geta verið sáttir við. Þetta er í flestum tilvikum lægri upphæð en fólk hefur hingað til greitt af erlendum lánum sínum og er í mörgum tilvikum í samræmi við þá greiðslu sem viðskiptavinir greiddu í upphafi. Bankinn býður þetta úrræði á meðan ekki er ljóst um endanlega meðhöndlun umræddra lána.

Hvernig verður greiðslum háttað eftir að ég segi mig frá þessu úrræði eða því lýkur?

Það fer eftir því hvernig Hæstiréttur dæmir. Lánið fer í fyrri greiðsluferil að öllu óbreyttu en ef Hæstiréttur kemst að þeirri niðurstöðu að lánin séu ólögleg og útskýrir endurreikning lánanna hvað varðar vaxtakjör mun bankinn hlíta þeirri niðurstöðu og endurreikna lánið til samræmis við þá niðurstöðu.

Er fastgreiðsla vegna íbúðarlána valkvætt úrræði?

Já. Hægt er að sækja um það frá og með 8. júlí. Sækja þarf um úrræðið fyrir 20. júlí, ef það á að taka gildi fyrir gjalddaga 1. ágúst 2010.

Hvernig sæki ég um?

Viðskiptavinir geta sótt um úrræðið hér á vef Íslandsbanka, í öllum útibúum bankans og hjá þjónustuveri í síma 440 4000.

Hvað gerist hjá þeim sem taka ekki þessu úrræði?

Ef einstaklingar með erlend íbúðarlán óska ekki eftir að nýta sér þetta úrræði mun innheimta vera með sama sniði og verið hefur.

Hver verður kostnaðurinn við þetta?

Þetta tímabundna úrræði er lántakendum að kostnaðarlausu.

Hversu lengi er þetta nýja úrræði í boði?

Úrræðið gildir til 31. mars 2011 eða þar til dómstólar hafa skorið úr um lögmæti umræddra lána og hvaða vexti skuli nota við uppreikning þeirra.

Hvað gerist eftir þann tíma?

Ef dómstólar hafa ekki skorið úr um óvissu vegna þeirra lána sem um ræðir verður úrræði framlengt þar til niðurstaða liggur fyrir.

Geta viðskiptavinir nýtt sér þessa lausn ef þeir hafa nú þegar nýtt sér önnur úrræði bankanna?

Já, þeir geta nýtt sér þessa lausn, hinsvegar er ekki öruggt að mánaðarleg greiðsla verði lægri en sú sem hún er í dag og viðskiptavinum bent á að skoða sína greiðsluseðla áður en ákvörðun er tekin.

Ef búið er að greiða gjalddaga, er hægt að bakfæra greiðsluna og fá að greiða þessa fasta krónutölu m.v. þegar greidda gjalddaga?

Ekki er hægt að fá þessa lausn á gjalddaga sem hafa greiðst, ef gjalddagi greiðist tekur úrræðið gildi á næsta gjalddaga þar á eftir.

Á þetta við um höfuðstólslækkuð lán sem áður voru erlend?

Já þetta á líka við um höfuðstólslækkuð lán sem áður voru erlend. Þá reiknast umsamin greiðsla m.v. upphaflegan höfuðstól erlenda lánsins. Mikilvægt er að athuga hvort greiðslubyrði muni örugglega lækka þar sem mögulegt er að hún hækki.

Er hægt að sækja um höfuðstólslækkun og svo líka 5.000 kr. breytinguna?

Já en samkomulagið um 5000 kr. gildir þó aðeins til 31.03.2011 og þarf að undirrita það skjal sérstaklega.

Hvað ef skuldabréf eru í vanskilum?

Ef lán er í vanskilum þarf að semja um þau vanskil í hverju tilviki fyrir sig.

Hvað með þá sem eru með tryggingabréf vegna erlendra lána eiga þeir ekki rétt á þessu líka?

Þeir sem eru með tryggingabréf með veði í íbúðarhúsnæði eiga einnig kost á úrræðinu.