
Greiðslujöfnun og höfuðstólslækkun bílalána og bílasamninga
Íslandsbanki mun fara vandlega yfir dómsniðurstöðu Hæstaréttar vegna gengistryggðra bílalána og fylgjast með þeim skrefum sem stjórnvöld og Alþingi hyggjast taka í málinu á næstu dögum. Þó svo að Íslandsbanki Fjármögnun hafi ekki verið aðili málsins mun bankinn hlíta niðurstöðu dómsins og aðgerðum stjórnvalda og löggjafans í málinu ef til þeirra kemur.
Bankinn vill árétta að þrátt fyrir dómsniðurstöður Hæstaréttar hefur bankinn sterka eiginfjárstöðu og uppfyllir eftir sem áður eiginfjárkröfur FME. Íslandsbanki hefur áður lýst því yfir að þeir viðskiptavinir sem þegar hafa nýtt sér úrræði bankans vegna gengistryggðra bílalána hafa ekki fyrirgert mögulegum betri rétti sínum leiði niðurstaða Hæstaréttar eða stjórnvalda til hagfelldari niðurstöðu.
Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands gáfu út tilmæli um það hvernig fjármálafyrirtæki skuli vaxtareikna lán sem innhalda óskuldbindandi gengistryggingarákvæði þar til mál skýrast endanlega fyrir dómstólum.
Miðað verður við vexti eins og þeir voru á hverjum tíma fyrir sig.
Þessi bráðabirgðalausn er lántakendum að kostnaðarlausu.
Nei, greiðsluseðlar verða ekki gefnir út í júlí og ágúst vegna þessara lána og samninga.
Í þeim tilfellum sem sami greiðandi hefur verið af samningnum frá upphafi þá verður uppgjör 1. september skv. bráðarbirgðaútreikningi. Aðrir þurfa að bíða eftir niðurstöðu Hæstaréttar.
Já ef samningurinn hefur aldrei verið yfirtekinn á samningstímanum.
Nei, lántaki fyrirgerir ekki rétti sínum.