
Lausnir til að lækka höfuðstól og létta greiðslubyrði
Nú standa viðskiptavinum Íslandsbanka til boða ólíkar lausnir.
Við hvetjum alla okkar viðskiptavini til að fara vandlega yfir skuldir og eignir heimilisins og gera sér eins skýra mynd og kostur er af mánaðarlegri greiðslubyrði sinni, eignastöðu og þeim lausnum sem bjóðast.
Er lækkun á greiðslubyrði til skemmri tíma nauðsynleg eða er mögulegt að hraða eignamyndun og auka sparnað? Er áformað að skipta um húsnæði innan fárra ára eða er fjölskyldan komin í framtíðarhúsnæðið?
Hlutverk okkar er að aðstoða viðskiptavini við að finna þær lausnir sem hentar hverjum og einum best.
Nú er hægt að lækka höfuðstólinn á öllum erlendum lánum.
Í dag er í boði að fá fyrirframgreiðslu á viðbótarlífeyrissparnaði, að hámarki 2.500.000 kr..
Íslandsbanki og Opni Háskólinn í Háskólanum í Reykjavík bjóða upp á fjármálafræðslu.