Þjónusta og fríðindi
Í Námsvild færðu margskonar þjónustu og nýtur ýmissa fríðinda.
- 150 fríar debetkortafærslur á ári
- Stúdentakort frítt fyrsta árið
- 50% afsláttur af greiðsluþjónustu
- Persónugert debetkort
- Öflugur Netbanki
- Netbankinn í farsímanum

Námsmenn frá 16 ára aldri eru velkomnir í Námsvild, fjármálaþjónustu sérstaklega sniðna að þörfum námsmanna.
Við léttum þér lífið á meðan þú sinnir náminu og sjáum til þess að þú njótir hagstæðra kjara, margskonar þjónustu og ýmissa fríðinda.
Hafðu það aðeins betra!

Fáðu meira fyrir peningana með því að hafa reiðu á fjármálum þínum. Stúdentakortið er kreditkort sem er sérstaklega sniðið að þörfum námsmanna en handhöfum kortsins bjóðast ýmis sértilboð og afslættir. Meðal fríðinda er ókeypis aðgangur að heimilisbókhaldinu Meniga sem veitir góða yfirsýn yfir fjármálin.
Í ljósi mikillar lækkunar á gengi íslensku krónunnar hefur Íslandsbanki ákveðið að verða við óskum frá samtökum námsmanna (SÍNE) um að koma til móts við námsmenn sem eru í námi erlendis en eru með framfærslulán í íslenskum krónum.
Íslandsbanki býður námsmönnum, sem stunda nám erlendis, upp á framfærslulán í erlendri mynt. Lánið er allt að 100% af lánsáætlun LÍN, að teknu tilliti til vaxta, og er greitt út í þeirri mynt sem fram kemur á lánsáætluninni. Með því að vera með framfærslu í erlendri mynt minnkar námsmaður gengisáhættu sína til muna.
Íslandsbanki býðst nú til að endurreikna lánveitingu frá því október miðað við núverandi gengi. Væntanlegt námslán miðast við daggengi gjaldmiðla þegar það verður borgað út í íslenskum krónum eftir haustmisserið. Þetta þýðir að ef kemur til frekari lækkunar á gengi íslensku krónunnar gagnvart mynt námslands mun LÍN greiða hærri upphæð í íslenskum krónum inn á reikning lánþega í lok annar. (Nánari upplýsingar á lin.is )
Við bendum þeim námsmönnum sem vilja hækka yfirdráttarheimildir sínar að hafa samband við sitt viðskiptaútibú.
Í Námsvild færðu margskonar þjónustu og nýtur ýmissa fríðinda.
Félögum í Námsvild bjóðast spennandi möguleikar á lánum og enn betri kjör en almennt bjóðast.
Félagar í Námsvild eiga kost á bókakaupastyrk og námsstyrk.
Nýir félagar í Námsvild geta valið eina inngöngugjöf
í næsta útibúi Íslandsbanka.