
Þú getur fengið yfirlit og tilkynningar úr Netbankanum með SMS skilaboðum. Hægt er að panta upplýsingar um reikningsstöðu, viðvörun ef reikningsstaða fer niður fyrir viðmiðunarfjárhæð og tilkynningar um innborganir.
Veldu viðeigandi reikning og þá er hægt að fá sent til sín yfirlit daglega, vikulega eða mánaðarlega. Ef valin er vikuleg sending þá þarf að velja hvaða vikudag þú vilt fá yfirlitið sent með því að haka við þann vikudag. Velja þarf dagsetningu ef valdar eru mánaðarlegar sendingar. Velja þarf hvenær tíma dags sendingin á að berast.
Velja þarf viðeigandi reikning, slá inn viðmiðunarfjárhæð og ef staðan á reikningnum fer niður fyrir þá fjárhæð sendist út tilkynning um stöðuna.
Velja þarf viðeigandi reikning, slá inn viðmiðunarfjárhæð og þá sendist tilkynning út ef innborgun fer yfir þá skilgreindu viðmiðunarfjárhæð.