Beint á efnisyfirlit síðunnar
Sparnaður

Sparnaður í áskrift

Sparaðu á einfaldan og þægilegan hátt.

Reglulegur sparnaður

Reglulegur sparnaður í Netbanka

Hvers vegna sparnaður í áskrift?
Að setja sér markmiðHvort sem það er sumarfrí fjölskyldunnar, heimilistæki sem þarf að endurnýja eða eitthvað allt annað - með sparnaði í áskrift getur þú sett þér markmið, lagt fyrir í hverjum mánuði, safnað vöxtum og átt fyrir því sem þig langar að gera.
Reglulegur sparnaðurMeð því að spara í áskrift verður sparnaður eðlilegur hluti af föstum mánaðarlegum greiðslum og er millifærður sjálfkrafa af tékkareikningi. Þannig mætir sparnaðurinn ekki afgangi.
Að eiga fyrir óvæntum útgjöldumStök útgjöld geta sett fjárhag heimilisins úr jafnvægi og því er dýrmætt að eiga sparnað til að mæta óvæntum útgjöldum. Sparnaðurinn þinn getur því líka verið mikilvægur varasjóður fyrir heimilið.
Kostir þess að spara í áskriftÞú sparar með sjálfvirkum millifærslum í byrjun hvers mánaðar og sparnaðurinn mætir ekki afgangi. Þú ræður fjárhæðinni sem lögð er fyrir í hverjum mánuði og getur hækkað eða lækkað fjárhæðina að vild. Með sparnaði í áskrift er hægt að kaupa fyrir mun lægri upphæð í sjóðum en ef keypt eru stök bréf. Lágmarksupphæð í áskrift er 5.000 kr. - stök kaup 10.000 kr.
Að eiga fyrir hlutunumÞað er ekki bara góð tilfinning að eiga fyrir því sem maður kaupir - það er líka ódýrara að safna fyrir hlutunum en að fá lánað fyrir þeim. Þegar þú sparar ert það þú sem færð vextina!