Vaxtaþrep
Vaxtaþrep er sparnaðarreikningur þar sem vextir fara hækkandi eftir innstæðu. Hægt er að stofna Vaxtaþrep í Netbanka og útibúum íslandsbanka.
Kostir
- Óverðtryggður innlánsreikningur
- Aðeins 10 daga binding
- Stighækkandi vextir eftir innstæðu
- Vextir greiddir úr mánaðarlega
- Engin lágmarksinnstæða
- Hvorki þjónustugjöld, innlausnargjöld né aðrar þóknanir
Stighækkandi vextir*
| Þrep | Innstæðubil | Vextir |
|---|---|---|
| Grunnþrep | Undir 250 þúsundum | 3,20% |
| 1. þrep | 250 þúsund - 1 milljón | 3,20% |
| 2. þrep | 1 milljón - 5 milljónir | 3,60% |
| 3. þrep | 5 milljónir - 20 milljónir | 3,90% |
| 4. þrep | 20 milljónir - 75 milljónir | 4,20% |
| 5. þrep | 75 milljónir eða meira | 4,50% |
* Skv. vaxtatöflu Íslandsbanka 21. nóvember 2012.
Vextir á ári sýna ársávöxtun miðað við óhreyfða innstæðu. Mánaðarlegir vextir eru nafnvextir á ársgrundvelli.
Vextir eru lagðir við höfuðstól í lok hvers mánaðar.
Skilmálar
Stofnun reiknings
Reikningurinn er stofnaður í útibúi Íslandsbanka eða Netbanka Íslandsbanka.
Inn- og útborganir
Reikningurinn er ávallt opinn fyrir innborgunum og ekkert lágmark er á þeim. Hvert innlegg er bundið í 10 daga.
Útborgun getur farið fram á hvaða afgreiðslustað bankans sem er, sé fullgildum persónuskilríkjum framvísað eða vottuðu umboði reikningseiganda til úttektar. Umboðshafi skal sanna á sér deili með sama hætti og reikningseigandi og afhenda afrit umboðs til varðveislu í útibúi.
Vaxtatímabil
Vaxtatímabilið er frá fyrsta til síðasta dags hvers mánaðar. Vextir eru færðir á höfuðstól við lok hvers mánaðar.
Þóknanir
Bankinn innheimtir engin þjónustugjöld, innlausnargjöld eða þóknanir.
Kjör og skilmálar
Reikningurinn er óverðtryggður innlánsreikningur með breytilegum vöxtum. Skilmálar þessir og kjör reikningsins eru háð ákvörðun bankans hverju sinni. Upplýsingar um kjör reikningsins er að finna í vaxtatöflu bankans.
