Greiddu niður yfirdráttinn
Að greiða niður yfirdráttarlán er meðal hagstæðustu sparnaðarleiða sem völ er á. Þrepalækkun yfirdráttar hjálpar þér að skipuleggja markvissa niðurgreiðslu á yfirdrættinum og lækka vaxtakostnaðinn svo um munar.
- Yfirdráttarheimild er lækkuð mánaðarlega niður í 0 kr. (tímamörk eru þrjú ár)
- Þú velur mánaðarlega upphæð til lækkunar
- Þú velur yfir hversu langt tímabil lækkunin á sér stað
- Við lækkum vextina á móti
- Athugið: Gildir fyrir yfirdráttarlán lægra en 1.000.000 kr.
Þú gerir samkomulag í Netbankanum eða næsta útibúi um niðurgreiðslu sem tryggir þér 10,05 % útvexti*.
Settu upp eigin áætlun í Netbanka
Þú setur upp áætlun um niðurgreiðslu sem hentar þínum þörfum. Engin skilyrði né tímatakmörkun eru á þessari leið:
- Vextir haldast óbreyttir
- Þú ræður hve mikið heimildin lækkar í hverjum mánuði
- Engin skilyrði sett um tímabil
* Vextir á ársgrundvelli skv. vaxtatöflu Íslandsbanka 21. nóvember 2012. Vextir eru breytilegir og taka mið af vaxtatöflu bankans hverju sinni.
Spurt og svarað
Viðskiptavinur setur upp áætlun annað hvort í Netbankanum sínum eða með ráðgjafa í útibúi, um reglubundna lækkun yfirdráttarheimildar. Viðskiptavinur gætir þess að úttektir mánaðarins af reikningi rúmist ætíð innan nýrrar heimildar. Smátt og smátt lækkar yfirdráttarheimildin og yfirdráttarlánið verður úr sögunni.
Þjónustan á að virka sem hvetjandi aðhald að viðskiptavinum til að spara og draga úr neyslu og losna þannig við yfirdráttarlánin.
Já. Verði reikningur á F.I.T. þegar kemur að næstu lækkun, er bankanum heimilt að fella þjónustuna úr gildi.
Viðskiptavinur ber því ætíð ábyrgð á því sjálfur að yfirdráttur rúmist innan heimildar hverju sinni. Hægt er að fá áminningu um stöðu heimildar með smáskilaboðum í farsíma eða tölvupósti. Sjá nánar í Netbanka, undir stillingar -> pöntun yfirlita.
Já viðskiptavinir geta hætt í þjónustu.
1. Þeir sem skráðu sig í þjónustuna í Netbankanum geta hætt í þjónustu í Netbanka og gildir sú heimild sem er í gangi á þeim tímapunkti í 6 mánuði í viðbót. Til að fá framlengingu á þeirri heimild þurfa viðskiptavinir að óska eftir því við sitt viðskiptaútibú.
2. Þeir sem gengu frá skriflegu samkomulagi um lækkun þurfa að segja þjónustu upp í sínu viðskiptaútibúi og þá fara kjör reiknings aftur á þau sömu og voru í gildi fyrir skráningu.
Takk fyrir!
Ábending þín er móttekin
