Beint á efnisyfirlit síðunnar
Skólafólk

Lán

Tölvukaupalán

Íslandsbanki býður afar hagstæð kjör (sjá vaxtatöflu) á tölvukaupalánum til Námsvildarfélaga. Hámarkslán er 350.000 kr. til allt að 36 mánaða. Félagar í Námsvild Íslandsbanka sem eru ekki orðnir 18 ára geta fengið forráðamann til að taka fyrir sig tölvukaupalán.

Ferlið er einfalt:

  • Þú velur þér tölvu sem hentar fyrir námið, kemur í næsta útibú og sækir um tölvukaupalán
  • Upphæðin er lögð inn á debetkortareikninginn þinn, þú ferð í verslunina og greiðir fyrir tölvuna

Reikna tölvukaupalán

 

Lán vegna LÍN á hagstæðum kjörum

Þegar þú byrjar í lánshæfu námi bjóðast þér hagstæð kjör á yfirdráttarlánum til að brúa bilið þar til námslánin berast frá LÍN. Þjónustufulltrúinn þinn aðstoðar þig við að finna út upphæðina sem þú þarft að hafa til ráðstöfunar í hverjum mánuði.

Námslán í erlendri mynt

Íslandsbanki býður námsmönnum, sem stunda nám erlendis framfærslulán í erlendri mynt. Lánið er allt að 100% af lánsáætlun LÍN, að teknu tilliti til vaxta, og er greitt út í þeirri mynt sem fram kemur á lánsáætluninni.

Viðbótarnámslán

Námsmenn sem stunda lánshæft nám, eru komnir áleiðis í námi og sýna viðunandi námsárangur, eiga kost á viðbótarnámslánum á hagstæðum kjörum. Þjónustufulltrúinn þinn getur ráðlagt þér um mánaðarlega fjármögnun. Viðbótarnámslán dregst frá hámarksupphæð námslokaláns.

Hagstætt námslokalán

Félagar í Námsvild sem eru að ljúka lánshæfu námi eiga kost á hagstæðu námslokaláni og geta valið hvenær, innan 3ja ára, þeir greiða fyrstu afborgun.

Yfirdráttarheimild - fyrir sérstakar aðstæður

Félagar sem eru orðnir 18 ára geta fengið allt að 150.000 króna yfirdráttarheimild á debetreikninginn sinn ef þeir óska. Þjónustufulltrúinn þinn veitir þér allar upplýsingar og afgreiðir málið.

Útskriftarferðalán

Námsmenn sem ætla í útskriftarferð geta sparað fyrir ferðinni og fengið sömu upphæð að láni á hagstæðum kjörum, allt að 200 þúsund krónur, án ábyrgðarmanna.