Beint á efnisyfirlit síðunnar
Netlausnir

Reikningar maka

Í Netbankanum er hægt að sækja um aðgang að reikningum, kreditkortum og fjármálaupplýsingum annarra. Hjón eða einstaklingar í sambúð geta notað sama Netbankann og haft þannig öll sín fjármál á einum stað.

Umboð fyrir aðgang

Undirrita þarf umboð þess sem gefur öðrum aðgang að reikningum sínum, kreditkortum og fjámálaupplýsingum. Í umboðinu getur hann tilgreint sérstaklega hvaða reikningar og kreditkort það eru sem hann vill að verði aðgengilegir í Netbanka hins aðilans.

Í umboðinu er einnig hægt að gefa öðrum sérstaka heimild til að geta skoðað þær fjármálaupplýsingar sem eru aðgengilegar í Netbanka Íslandsbanka. Dæmi um þessar upplýsingar eru skuldabréfayfirlit, verðbréfayfirlit, lífeyrisyfirlit, skattayfirlit og ógreiddir reikningar. Ekki er hægt að gefa aðgang að öllum upplýsingum Netbankans, þar kemur til kasta laga um persónuvernd.

Umboðinu þarf að skila undirrituðu og vottuðu í eitthvert af útibúum bankans.

Fylgiskjöl