Netlausnir

Rafræn skilríki

Rafræn skilríki með tvennskonar virkni:

  • Til auðkenningar við innskráningu í Netbanka og inn á vefi þjónustuaðila og opinberra stofnanna.
  • Til undirskriftar samninga og ýmissa skuldbindinga á borð við lán, leyfisumsóknir o.fl.
  • Eitt PIN númer á alla þjónustuvefi, sérstök notendanöfn og lykilorð fyrir hverja þjónustu heyra sögunni.

Sjá allar nánari upplýsingar um rafræn skilríki á skilriki.is.

Hvernig nálgast ég rafræn skilríki?

  • Hjá bönkum og sparisjóðum
  • Öll ný debetkort innihalda rafræn skilríki
  • PIN númer rafrænna skilríkja er 6 tölustafa lykilorð sem notandinn velur sér þegar hann fær skilríkin / debetkortið afhent í útibúi
  • PUK númeri er úthlutað í Netbanka og þarf viðskiptavinurinn að hafa það með sér þegar hann sækir skilríkin / debetkortið

Rafræn skilríki og auðkennislykillinn

Bankar og sparisjóðir hafa markvisst skoðað leiðir til þess að auka öryggi í rafrænum viðskiptum. Fyrsta skrefið í þá átt var að taka í notkun auðkennislykla. Rafræn skilríki eru rökrétt framhald í viðleitni til aukins öryggis.

Með rafrænum skilríkjum skapast traust þar sem notendur geta auðkennt sig með öruggum hætti og skrifað rafrænt undir skjöl og skuldbindingar. Samhliða almennri útbreiðslu rafrænna skilríkja mun framboð á rafrænni þjónustu margfaldast sem skilar sér í auknu hagræði fyrir þjónustuveitendur, fyrirtæki og almenning.