Netlausnir

Öryggi Netbankans

Dulkóðun - Globalsign

Íslandsbanki leggur mikla áherslu á að tryggja öryggi viðskipta í gegnum Netbankann og eru öll samskipti við hann dulrituð með 128 bita dulmálslykli frá Globalsign. 128 bita dulritun er sú öflugasta sem fáanleg er í dag.

Þegar farið er af forsíðu islandsbanki.is yfir í Netbankann birtist aðvörun (Security Alert). Hún gefur til kynna að farið sé yfir á öruggt svæði.

Ef hakað er við þar sem stendur "In the future, do not show this warning" kemur þessi gluggi ekki upp aftur.

Öryggi - HTTP/HTTPS

Þegar farið er inn á öruggt vefsvæði birtist https í stað http fremst í vefslóð. Þetta gefur einnig til kynna að nú ert þú á öruggu svæði og öll samskipti eru dulkóðuð.

Öryggi - Lás

Á öruggu vefsvæði birtist einnig lokaður hengilás neðst til hægri í vefskoðaranum, eða í reit fyrir vefslóð (e. address bar). Með þessu móti má því alltaf sannreyna hvort tiltekin vefsíða sé örugg (e. secure).

Innskráning/hætta

Þegar notandi er ekki skráður inn en er staddur í Netbankanum, kemst hann ekki lengra en á innskráningarsíðu. Ef búið er að skrá notandanafn og lykilorð stendur "Hætta" efst í hægra horninu.

Til að skrá sig út úr Netbankanum er smellt á "Hætta" og er þá notandi sjálfkrafa fluttur á forsíðu Íslandsbanka. Rétt er að loka öllum gluggum í vefskoðara þegar búið er að skrá sig út.

Ef þú manst ekki lykilorðið

Ef lykilorð glatast er hægt að nálgast nýtt í næsta útibúi Íslandsbanka. Ráðlagt er að notendur breyti síðan lykilorðinu sínu þegar farið er næst inn í Netbankann. Athugið að lykilorð eru aldrei afhent í gegnum tölvupóst eða síma.

Meðferð lykilorða

Lykilorð jafngildir undirskrift í Netbankanum og því er nauðsynlegt að gæta þess vel að enginn óviðkomandi hafi aðgang að því. Lykilorðið kemur í veg fyrir að óviðkomandi aðilar komist inn á svæði notanda og ber notandi ábyrgð á öllum aðgerðum sem framkvæmdar eru undir hans lykilorði. Leiki einhver grunur á að aðrir viti lykilorðið er nauðsynlegt að breyta því við fyrsta tækifæri. Það má gera í Netbankanum undir: Stillingar > Lykilorð.

Einnig er skynsamlegt að breyta lykilorði reglulega af öryggisástæðum. Lykilorð verður að vera minnst átta stafa langt og innihalda að minnsta kosti tvo tölustafi. Ekki má nota séríslenska stafi eða tákn.