Öryggi
Öll samskipti í Netbanka eru dulkóðuð auk þess sem hámark er á því hversu háar færslur geta verið.
Hvað getur þú gert til að tryggja öryggi þitt?
- Skipt reglulega um lykilorð
- Skipt reglulega um öryggisnúmer
- Sótt nýjustu útgáfu vafra
- Sótt nýjustu öryggisuppfærslu stýrikerfis
- Sótt nýjustu öryggisuppfærslur fyrir notendaforritin
- Varið tölvuna fyrir óæskilegum hugbúnaði
- Skiptu reglulega um lykilorð
Lykilorð jafngildir undirskrift í Netbankanum og því er nauðsynlegt að gæta þess vel að enginn óviðkomandi hafi aðgang að því. Þú berð ábyrgð á þeim aðgerðum sem framkvæmdar eru með lykilorði þínu. Leiki einhver grunur á að aðrir viti lykilorðið skaltu breyta því strax. Það má gera í Netbankanum undir: Stillingar > Lykilorð.
Gleymt lykilorð
Ef lykilorð glatast er hægt að nálgast nýtt í næsta útibúi Íslandsbanka. Ráðlagt er að notendur breyti síðan lykilorðinu sínu þegar farið er næst inn í Netbankann. Athugið að lykilorð eru aðeins afhent gegn framvísun persónuskilríkja og aldrei í gegnum tölvupóst eða síma.
Skiptu reglulega um öryggisnúmer
Til að tryggja hámarks öryggi býður Íslandsbanki viðskiptavinum sínum að staðfesta fjárhagslegar færslur með sérstöku öryggisnúmeri. Öryggisnúmerið er staðfest með því að velja tölurnar af sérstöku lyklaborði sem birtist á skjánum.
Leiki einhver grunur á að aðrir viti öryggisnúmerið þitt skaltu breyta því strax. Það má gera í Netbankanum undir: Stillingar > Öryggisnúmer.
