Netlausnir

Auðkenni

Auðkennislykillinn er öryggisviðbót sem gerir innskráningu í Netbankann öruggari en fyrr sem bankar og sparisjóðir hafa sameinast í að innleiða.

Auðkennislykillin er einfalt tæki sem gefur eiganda sínum nýtt númer í hvert sinn sem hann skráir sig inn í Netbankann.

Þar sem númerið er síbreytilegt verður því ekki þefað uppi af tölvuþrjótum, öryggi hvers og eins tryggt í takt við nýjustu tækni og ströngustu kröfum sem hægt er að gera. Hægt er að nota sama auðkennislykil í innskráningu netbanka hjá hvaða banka eða sparisjóði sem er.

Virkja auðkenni

Virkja þarf auðkennislykilinn fyrst áður en hægt er að nota hann. Eftir það þekkir hann eiganda sinn og gefur honum hverju sinni nýtt númer til að slá inn. Virkja þarf auðkennislykilinn í Netbanka undir Stillingar > Auðkenni.

  1. Samþykkja skilmála með notendanafni og lykilorði.
  2. Slá inn raðnúmer auðkennislykils og GSM númer fyrir þá sem vilja nota GSM númer sem varaleið.
  3. Slá þarf aftur inn raðnúmer og GSM númer ásamt því að slá inn tvö mismunandi númer sem birtast á auðkennislyklinum.

Auðkennislykill - tækið

Ef ýtt er á hnappinn á hlið auðkennislykilsins kemur fram auðkennisnúmer sem lifir í 45 sekúndur. Til að framkalla nýtt auðkennisnúmer þarf að halda hnappnum inni þangað til númerið hverfur og ýta síðan aftur til að framkalla nýtt auðkennisnúmer. Auðkennisnúmerið sem birtist er aldrei það sama.