
Vegna mótframlagsins og skattlagningar er viðbótarlífeyrissparnaður einhver hagstæðasti sparnaður sem völ er á. Launþegar sem ekki nýta sér þennan möguleika til aukins sparnaðar eru að missa af umsömdum launakjörum.
Hægt er að greiða allt að 6% af launum í viðbótarlífeyrissparnað og fá allt að 2% mótframlag frá launagreiðanda, samkvæmt flestum kjarasamningum.
Einnig er hægt að fá sparnaðinn greiddan út í reglulegum greiðslum ef til örorku kemur fyrir 60 ára aldur.

Já, þú ræður hvar þú ávaxtar þinn viðbótarlífeyrissparnað. Þú þarft ekki að greiða hann í sama lífeyrissjóð og þú greiðir skyldusparnaðinn.
Í Netbanka Íslandsbanka er hægt að fylgjast með þróun viðbótarlífeyrissparnaðar daglega og meta árangur fjárfestingarstefnunnar. Þar getur þú séð hreyfingar og stöðu ásamt hefðbundnum yfirlitum. Þú getur borið saman launaseðla við upplýsingar á yfirlitum í Netbankanum. Aðgangur að Netbanka fæst í næsta útibúi, hjá Eignastýringu en einnig er hægt að sækja um á vefnum. Að auki eru yfirlit send út til viðskiptavina tvisvar á ári.
Íslandsbanki hefur lagt sig fram um að greina þarfir viðskiptavina og aðstæður. Þegar þú byrjar í viðbótarlífeyrissparnaði hjá Íslandsbanka ferð þú í gegnum ítarlegt mat á viðhorfi þínu til áhættu. Viðeigandi fjárfestingarleið er valin m.a. með tilliti til niðurstöðu á mati á viðhorfi þínu til áhættu en jafnframt er tekið mið af öðrum þáttum, s.s. hversu langt er í að nýta þurfi þennan tiltekna sparnað, hvort þú átt annan viðbótarsparnað eða réttindi í lífeyrissjóðum.
*Lífeyrissparnaður er skattlagður við útgreiðslur. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.
Ráðgjafar Eigna- og lífeyrisþjónustu eru við símann.
Sími: 440 4920
eignastyring@islandsbanki.is