Skuldabréf og víxlar
Verðtryggð eða óverðtryggð lán til skamms eða langs tíma
Skuldabréf eru lán gegn skuldayfirlýsingu, verðtryggð og óverðtryggð. Skuldabréf geta verið með ábyrgðarmönnum eða fasteigna- og/eða bifreiðaveði og ákvarðast vextir af því.
- Fjölbreyttir möguleikar á lánssamsetningu
- Möguleiki á skammtímaláni (nokkrir mánuðir) og allt upp í 25 ár
- Vextir yfirleitt hærri af óverðtryggðu en verðtryggðu láni
- Verðtryggð skuldabréfalán er ekki hægt að fá til skemmri tíma en 5 ára samkvæmt lögum
- Vextir ráðast af tegundum trygginga og greiðsluhæfi lántakanda
- Töku skuldabréfaláns fylgir 1,5% stimpilgjald til Ríkissjóðs
Víxill
Þegar þú tekur víxil þá tekur þú hann í fyrirframákveðinn tíma. Vextir og kostnaður greiðast fyrirfram.
Dæmi:
Þú kaupir 100.000 kr. víxil. Þú færð þá 100.000 kr. mínus vexti og kostnað. Á gjalddaga greiðir þú svo 100.000 kr.
Hægt er að framlengja víxil í ákveðinn tíma og þá greiðir þú kostnað og vexti fyrir það. Þú greiðir svo að þeim tíma liðnum 100.000 kr.
