Beint á efnisyfirlit síðunnar
Lán

Verðtryggt húsnæðislán

Íslandsbanki býður upp á verðtryggð húsnæðislán á föstum vöxtum með vaxtaendurskoðunarákvæði á fimm ára fresti.

4,10% fastir vextir í 5 ár*

  • Greiðslubyrði frekar stöðug þar sem verðbætur koma ekki strax til greiðslu heldur leggjast við höfuðstól og dreifast á lánstímann
  • Vextir endurskoðaðir að 5 árum liðnum
  • Uppgreiðslugjald skv. verðskrá hverju sinni (nú 2,0%) en hægt að greiða lánið upp án kostnaðar við vaxtaendurskoðun.

*skv. vaxtatöflu Íslandsbanka 13.04.2012

Lánsfjárhæð

Lánað er allt að 70% af fasteignamati ríkisins en lántakendum stendur til boða viðbótarlán upp í 80% af markaðsverðmæti íbúðarhúsnæðis. Hægt er að velja tegund viðbótarláns; breytilegir óverðtryggðir 6,15% vextir, óverðtryggðir fastir 7,45% vextir eða verðtryggðir 4,95% vextir.

Lágmarks lánsfjárhæð er 1 milljón kr. og hámarks lánsfjárhæð eru 50 milljónir kr. en lánsfjárhæð getur þó aldrei orðið hærri en samtala brunabótamats og lóðamats fasteignar.

Lánstími og greiðslur

Húsnæðislán innan 70% af fasteignamati er lánað frá 5 árum til allt að 40 ára en viðbótarlán upp að 80% af markaðsverðmæti er til allt að 25 ára. Hægt er að velja á milli jafnra afborgana af höfuðstól og jafnra greiðslna (annuitet).

Kostnaður

Lántökugjald er 1,0% af lánsfjárhæð og stimpilgjald 1,5% sem rennur til ríkissjóðs. Engin stimpilgjöld eru greidd vegna kaupa á fyrstu íbúð. Þinglýsingargjald er samkvæmt gjaldskrá Sýslumannsembættis. Uppgreiðslugjald er skv. verðskrá bankans hverju sinni (nú 2,0%, skv. verðskrá 1. okt. 2011) en hægt að greiða lánið án uppgreiðslugjalds við vaxtaendurskoðun**

Skilyrði fyrir lánveitingu

Húsnæðislán eru veitt einstaklingum til kaupa eða endurfjármögnunar á íbúðarhúsnæði til eigin nota. Lánað er gegn fyrsta veðrétti og er hver umsókn metin með tilliti til lánshæfis og virði íbúðarhúsnæðis. Áður en lánsumsóknir eru samþykktar þurfa viðskiptavinir að standast greiðslumat hjá bankanum.