
Íslandsbanki býður nú viðskiptavinum sínum hagstætt framkvæmdalán til endurbóta eða framkvæmda á fasteignum, lóðum og sumarhúsum. Með þessu viljum við leggja okkar að mörkum til átaksins Allir vinna og eiga þátt í að koma hjólum atvinnulífsins af stað.
Lánin eru veitt til einstaklinga með trausta viðskiptasögu og góða greiðslugetu. Hámarksfjárhæð hvers láns er 1,5 milljónir króna gegn veði en veitt eru lán án veðs allt að 750.000 kr. að undangengnu mati á greiðslugetu.
Afgreiðsla framkvæmdaláns er gegn framvísun reikninga fyrir vöru- og þjónustukaupum sem tengjast framkvæmdum til 1. desember 2010.
Allar nánari upplýsingar fást í útibúum Íslandsbanka.
Allir vinna er hvatningarátak stjórnvalda og aðila úr atvinnulífinu sem miðar að því að hvetja einstaklinga til að leggja sitt af mörkum til sköpunar atvinnu á Íslandi. Þeir sem ráðast í framkvæmdir á heimilinu eða í sumarhúsinu eiga rétt á 100% endurgreiðslu á virðisaukaskatti af vinnulaunum og skattafrádrætti af tekjuskattstofni sem getur numið allt að 300.000 kr. Nánari upplýsingar er að finna á allirvinna.is.
*Vextir skv. vaxtatöflu Íslandsbanka 1. september 2010. Vextir taka mið af kjörvöxtum óverðtryggðra skuldabréfalána en veittur er 2% vaxtafrádráttur af þeim.