Kort

Tryggingar

Með því að greiða tilskilinn hluta ferðakostnaðar með Íslandsbankakorti fyrir brottför nýtur korthafi sjálfkrafa öruggrar ferðatryggingar og neyðarþjónustu um allan heim ef slys eða veikindi ber að höndum á ferðalagi.

Ferðatryggingar kreditkorta eru mismunandi víðtækar eftir tegund korts og skulu korthafar kynna sér vel tryggingaskilmála síns korts.

Bótafjárhæðir einstaklinga

Fjárhæðir í krónum (hámarksbætur)Almennt kort án fríðindaAlmennt kort með fríðindum og StúdentakortGullkortPlatínumkort
Innkaupatrygging 160.000**200.000**400.000*
Forfallatrygging 200.000*200.000*350.000*
Sjúkratrygging2.000.000**2.000.000**8.000.000**8.000.000*
Bílaleigutrygging    
Endurgreiðsla ferðar 360.000360.000440.000
Farangurstrygging 160.000**200.000**400.000*
Viðbótarábyrgðartr.   USD 1.000.000
Ferðarof 120.000120.000240.000
Ábyrgðartrygging 40.000.000**40.000.000**40.000.000*
Samfylgd í neyð80.00080.000160.000240.000
Kaskótrygging   USD 50.000
Farangurstöf 12.00024.00040.000
Mannránstrygging   720.000
Sjúkrahús-dagpeningar   144.000
Örorkubætur vegna slyss3.600.0004.500.0009.000.00012.000.000
Dánarbætur vegna slyss3.600.0004.500.0009.000.00012.000.000

* eigin áhætta kr. 12.000
** eigin áhætta kr. 20.000

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. er tryggingarfélag kreditkorta Íslandsbanka og starfsfólk Sjóvá sér um að meta tjón korthafa og greiða út bætur samkvæmt kortaskilmálum.

Tjónstilkynning

Korthafar skulu leita beint til tjónadeildar Sjóvá.

Neyðarþjónusta erlendis

Neyðarþjónustan útvegar til dæmis lækni eða sjúkrahúsvist og sér um að skipuleggja flutning korthafa heim frá útlöndum ef veikindi eða slys eru alvarleg. Í neyðartilvikum erlendis skulu korthafar snúa sér til SOS International A/S í Danmörku í síma +45 70 10 50 50 eða með tölvupósti á sos@sos.dk.