Kort

Greiðsluleiðir

Korthafar Íslandsbanka geta valið um þrjár endurgreiðsluleiðir kortanotkunar.

Hefðbundið kreditkort - Greitt eftir á

Með hefðbundnu kreditkorti greiðir korthafi heildarskuldina sem komin er á kortið á gjalddaga reiknings. Þannig fær korthafi í raun greiðslufrest í allt að 45 daga. Hægt er að setja rað- og léttgreiðslur á hefðbundið kreditkort, auk þess sem hægt er að biðja um fjölgreiðslu á heildarskuld sem er umfram greiðslugetu þann mánuðinn.

  • Heildarskuld greidd á gjalddaga/eindaga reiknings
  • Raðgreiðslur, léttgreiðslur og greiðsludreifing möguleg

Fyrirframgreitt kreditkort

Með fyrirframgreiddu kreditkorti þarf korthafi að eiga inneign fyrir þeirri notkun sem mun verða á kortinu. Korthafi greiðir því inn á kortið áður en það er notað. Hentugt fyrir þá sem vilja ávallt eiga fyrir kreditkortanotkun sinni. Ekki er hægt að setja rað- eða léttgreiðslur á fyrirframgreidd kreditkort.

  • Öll almenn kreditkort Íslandsbanka er hægt að fá sem fyrirframgreidd kreditkort
  • Raðgreiðslur og léttgreiðslur ekki mögulegar

Veltukort

Með veltukorti greiðir korthafi ákveðið lágmark í lok hvers úttektartímabils en getur velt eftirstöðvunum yfir á næsta tímabil. Veltukort gefa þannig kost á sveigjanlegri endurgreiðslu kreditkortareiknings en korthafi hefur alltaf val um að greiða allan reikninginn eða ákveðið lágmark. Ef korthafi ákveður að greiða lágmarkið þá greiðir hann 5% af heildarskuld auk vaxta en aldrei lægra en 5.000 kr. á mánuði, að því tilskyldu að heildarskuld sé undir heimildarmörkum kortsins. Ekki er hægt að setja rað- eða léttgreiðslur á veltukort en í eðli sínu bjóða veltukort upp á þess konar greiðsludreifingu.

  • Sveigjanlegri endurgreiðsla kreditkortareiknings
  • Val um að greiða upp lágmarkið eða allan reikinginn
  • Hugsuð til stórinnkaupa eins og þegar þú kaupir nýja uppþvottavél, sófasett eða heimabíó