Fríðindi
Íslandsbankakortum geta fylgt mismunandi fríðindi, svo sem Íslandsbankapunktar í Vildarklúbbi Íslandsbanka, Ferðaávísun MasterCard og Vildarpunktar Icelandair.
Íslandsbankapunktar
Viðskiptavinir í Vildarklúbbi Íslandsbanka safna Íslandsbankapunktum með Vildarklúbbskreditkorti sínu, auk þess að safna punktum fyrir ýmsa aðra bankaþjónustu. Einn helsti kostur Íslandsbankapunkta er að ef þú veist ekki fyrirfram hvernig þú vilt nýta þér fríðindin þá getur þú bara byrjað að safna Íslandsbankapunktum og ákveðið síðar hvernig þú vilt innleysa þá.
Punktana er til dæmis hægt að nota til þess að kaupa ferðaávísun MasterCard eða Vildarpunkta Icelandair, auk þess sem hægt er að innleysa punktana í sparnað, góðgerðarmál eða endurgreiðslu í peningum.
Ferðaávísun
Ferðaávísun er hentug aðferð til að létta kostnaðinn við að fara í ferðalag. Hægt er að kaupa ferðaávísun í Vildarklúbbi Íslandsbanka og nota hana sem innborgun á ferð sem greidd er með MasterCard kreditkorti. Kostur þessa fyrirkomulags er sá að þú getur keypt ferðaávísun fyrir nákvæmlega þá upphæð sem hentar hverju sinni, þegar þér hentar. Bæði er hægt að fá ferðaávísun prentaða út til notkunar hjá einhverjum samstarfsaðila ferðaávísunarinnar eða fengið andvirði hennar lagt inn á MasterCard kreditkort ef búið er að greiða ferð með kortinu.
Vildarpunktar Icelandair
Handhafar Visa og American Express kreditkorta geta safnað Icelandairpunktum í Vildarklúbbi Icelandair. Punktasöfnun er þó mismunandi eftir tegund kortsins. Vildarpunktarnir fást fyrir innlenda notkun og færast mánaðarlega inn á punktareikning korthafa hjá Vildarklúbbi Icelandair. Vildarpunktar fást einnig vegna viðskipta við Icelandair og ýmsa samstarfsaðila í verslun og þjónustu sem Icelandair hafa gert samning við um afslátt í formi punkta og koma þeir til viðbótar hinum veltutengdu ferðapunktum
Vildarpunktana er hægt að nota til farseðlakaupa samkvæmt reglum Icelandair eða í viðskiptum við samstarfsaðila þeirra.
