Hefja viðskipti
Það er auðvelt að flytja viðskiptin til Íslandsbanka. Við tökum vel á móti þér og kappkostum að gera flutning viðskipta einfaldan, öruggan og þægilegan.
Til að hefja viðskipti við Íslandsbanka kemur þú í næsta útibú eða fyllir út umsóknina hér fyrir neðan og ráðgjafi frá bankanum hefur samband við þig. Ráðgjafinn fer yfir þá þjónustu sem Íslandsbanki býður upp á og sér um að flytja viðskiptin þín þannig að þú þarft ekki sjálf/ur að segja upp viðskiptum þínum við núverandi viðskiptabanka.
Vinsamlegast hafðu með þér löggild skilríki við komu í útibúið.
Spurt og svarað
Hversu langan tíma tekur að gerast viðskiptavinur Íslandsbanka?
Stofnun reikninga og Netbanka gerist samdægurs. Stofnun greiðslukorta tekur allt að 3 virka daga. Misjafnt er hversu langan tíma tekur að flytja aðra þjónustu, s.s. greiðsluþjónustu og útlán en skoða verður hvert tilvik fyrir sig. Við leggjum kapp á að allt ferlið taki sem skemmstan tíma.
Hvað þarf ég að koma með til að gerast viðskiptavinur?
Einstaklingar þurfa að koma með fullgild persónuskilríki, s.s. vegabréf, ökuskírteini eða nafnskírteini. Til að taka af tvímæli þá teljast greiðslukort ekki vera fullnægjandi persónuskilríki.
Hvernig segi ég upp viðskiptum við núverandi viðskiptabanka?
Ráðgjafi Íslandsbanka aðstoðar þig við að fylla út umsókn vegna flutnings viðskipta sem hann svo sendir til núverandi viðskiptabanka í þínu umboði. Þú þarft því ekki að fara sjálf/ur og segja viðskiptum upp við fyrri banka, við sjáum um það fyrir þig
