Almennt kreditkort
- Tilvalið fyrsta kreditkort
- Ódýrt og þægilegt
- Grunntryggingar eða góðar ferðatryggingar

Íslandsbanki býður upp á fjölbreytt úrval kreditkorta frá tveimur þekktustu og virtustu kortafyrirtækjum í heimi - MasterCard og Visa.
Kreditkort Íslandsbanka eru einfaldur og hentugur greiðslumáti en kortin má nota til greiðslu á vörum og þjónustu innanlands sem utan.
Íslandsbankakort geta haft fjölbreytta eiginleika og þeim fylgt ýmis fríðindi, s.s. Íslandsbankapunktar eða Vildarpunktar Icelandair.
Ferðatryggingar fylgja kreditkortum og er tryggingavernd þeirra mismunandi eftir tegund kreditkorts.
Einnig er hægt að velja um mismunandi greiðsluleiðir, þ.e. fyrirframgreidd kort, eftirágreidd og veltukort þar sem korthafar geta greitt fyrir kortanotkun sína yfir lengra tímabil en á hefðbundnum kreditkortum.