Efni og innihald greina endurspegla ekki mat eða skoðanir Íslandsbanka heldur einungis þeirra aðila sem þær skrifa.
Margar góðar bækur hafa verið skrifaðar um efnahags- og viðskiptatengd málefni á undanförnum árum. Ýmsir höfundar sérhæfa sig í skrifum á slíkum bókum, jafnt fræðimenn sem og blaðamenn. Fátt veitir betri fræðslu og þekkingu á efnahags- og viðskiptalífinu en lestur slíkra bóka. Boðskapur flestra þeirra er sá að heimurinn fari stöðugt í hringi. Efnahagskrísur koma og fara. Fólk sem hefur áhuga á að auka fjármálaþekkingu sína og vill skilja hagsögu heimsins ætti að lesa sem mest af slíkum bókum. Þær er hægt að fá á bókasöfnum landsins, í bókabúðum eða jafnvel hægt að kaupa þær á netinu á vefsíðu Amazon sem dæmi.
Hér er listi yfir tíu bækur sem flestir ættu að hafa gaman af. Listinn er þó alls ekki tæmandi. Þeir sem myndu lesa þær allar fengju þó ansi góða grunnþekkingu á fjármálum og hagfræði:
1. The Ascent Of Money eftir Niall Ferguson
Þessi bók hefur verið þýdd yfir á íslensku og ber heitið Peningarnir sigra heiminn. Skoski sagnfræðingurinn Niall Ferguson fer í bókinni yfir fjármálasöguna frá upphafi og til dagsins í dag. Byrjar hann ferðina fimm þúsund árum fyrir Krist og endar á því að segja frá því sem gerðist á fjármálamörkuðum eftir aldamótin með stórauknu vægi flókinna fjármálaafurða. Vel skrifuð bók á mannamáli og ættu allir að hafa gaman af þessari bók. Ein af söluhæstu bókum á Íslandi fyrir síðustu jól.
2. The Return of Depression Economics And the Crisis Of 2008 eftir Paul Krugman
Góð bók fyrir þá sem vilja lesa sér til um kreppuhagfræði alþjóðakerfisins síðustu öldina. Áherslan er þó á það sem gerst hefur eftir árið 1990 eins og krísan í Asíu og fjármálakrísan sem hófst í lok sumars 2007.
Bókin kom fyrst út árið 1999 og var tilefnið efnahagskrísan í Asíu árið 1997 og einnig krísur í Suður-Ameríku í löndum eins og Mexíkó og Argentínu. Krugman endurgerði síðan bókina árið 2008 eftir að heimskreppa skall á.
Bókafélagið Urður þýddi bókina of gaf hana út sumarið 2009 og ber hún íslenska nafnið: Aftur til kreppuhagfræði: Krísan 2008. Krugman er einn þekktasti hagfræðingur heims, kennari við Princeton háskólann í New York, pistlahöfundur hjá New York Times og hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfræði árið 2008.
3. When Genius Failed: The Rise And Fall Of Long Term Capital Management eftir Roger Lowenstein
Bókin fjallar um vogunarsjóðinn Long Term Capital Management (LTCM) sem fór á hausinn árið 1998 þegar Rússland stóð ekki skil á greiðslum af ríkisskuldabréfum sínum. Sjóðurinn var stofnaður árið 1994 og meðal starfsmanna hans voru þeir Myron Scholes og Robert C. Merton, Nóbelsverðlaunahafar í hagfræði árið 1997. Þeir bjuggu til líkön sem áttu að veita góða ávöxtun með sáralítilli áhættu.
Líkönin þeirra höfðu þó ekki gert ráð fyrir því að Rússland gæti ekki borgað af ríkisskuldabréfum sínum. Þar sem sjóðurinn var gríðarlega skuldsettur með 5 milljarða dollara eignir en 125 milljarða dollara skuldir átti hann erfitt með að taka á sig mikil högg sem leiddu til gjaldþrots hans en seðlabanki Bandaríkjanna bjargaði honum til að koma í veg fyrir frekari niðursveiflur á mörkuðum. Áhugaverð bók sem sýnir að jafnvel Nóbelsverðlaunahöfum getur mistekist.
4. The Big Short: Inside the Doomsday Machine eftir Michael Lewis
Metsöluhöfundurinn Michael Lewis hefur gefið út margar bækur um fjármálalífið. Fyrsta bókin hans hét Liar´s Poker en þar sagði hann frá upphafi starfsferils síns á Wall Street upp úr 1980 þegar hann vann hjá fjárfestingabankanum Solomon Brothers.
Í bókinni The Big Short fer Lewis yfir það sem gerðist á síðustu árum 21. aldarinnar í fjármálaheiminum eins og skuldavafninga (e. CDO´s), afleiður og undirmálslán (e. Sub prime loans). Lewis hefur skrifað út frá sjónarhóli fjárhagslegs innhverja síðustu 20 árin og fáir koma betur frá sér orðum á blað um þennan heim en hann. Virkilega góð bók sem ætti að vera áhugaverð bæði fyrir áhugamenn sem og þá sem starfa á fjármálamarkaði.
5. The Black Swan: The Impact of the Highly Improbable eftir Nassim Taleb
Nasim Taleb er einna þekktastur fyrir bækur sínar The Black Swan og Fooled by Randomness. Í The Black Swan gagnýnir Taleb spálíkön fræðimanna, þá sérstaklega tölfræðinga og hagfræðinga. Hann gagnrýnir þá sem nota spálíkön til að segja fyrir um framtíðina því að hans mati taka þeir ekki nægilega mikið tillit til óvæntra og ófyrirsjáanlegra atburða. Sjaldan sé reiknað með því versta, hinum svarta svani.
Taleb hefur mikla reynslu af því að starfa á fjármálamarkaði, er sjálfur fjárfestir, menntaður tölfræðingur og metsöluhöfundur. Með slíka reynslu eru því fáir sem hafa meiri burði til að geta komið með gagnrýni á oftrú fjármálamarkaðarins á líkanagerð hin síðustu ár. Bókin er skrifuð á mannamáli og með því að nota sér dæmisögur nær Taleb að útskýra flókin tölfræðivanda á skiljanlegan hátt.
6. This time is Different: Eight Centuries of Financial Folly eftir Carmen M. Reinhart og Kenneth S. Rogoff
Helsti boðskapur þeirra Reinhart og Rogoff eftir að hafa rannsakað ,,fjármálaheimsku" síðustu átta alda er að mannkynið virðist aldrei læra af reynslunni. Mannkynið geri sömu mistökin aftur og aftur. Ofurtrú á að í þetta skiptið verði þetta öðruvísi vegna nýrra aðferða í fjármálaheiminum sem síðan sýni sig að lúti sömu lögmálum og fjármál gerðu áður. Báðir eru þeir þaulreyndir og virtir hagfræðingar. Reinhart starfar sem prófessor í hagfræði við University of Maryland í Bandaríkjunum og Rogoff er prófessor í hagfræði við Harvard háskólann. Einnig lýsa þeir yfir áhyggjum af því að bandarísk stjórnvöld séu að gera sömu mistök við að byggja upp efnahagskerfi sitt líkt og Japanir eftir árið 1990. Nú sé verið að reyna að bjarga dauðvona bönkum sem séu ekki næginlega góðir til að veita ný lán og koma efnahag sínum aftur á réttan kjöl. Japanir hafi í langan tíma glímt við verðhjöðnun sem einnig gæti hent Bandaríkin.
7. The Smartes Guys in the Room: The Amazing Rise and Fall of Enron eftir Bethany McLean og Peter Coyote
Blaðamenn Fortune tímaritsins þau Bethany McLean og Peter Coyote fara hér yfir ris og fall orkufyrirtækisins Enron en bókin kom út árið 2004. Bókin gefur greinargóða lýsingu á aðalleikendum í svikamyllu Enron og hvað þeir gerðu rangt sem varð fyrirtækinu að falli.
Góðar lýsingar eru gefnar af háttsettustu starfsmönnum Enron og í upphafi segir bókin m.a. frá því þegar Cliff Baxter, einn af toppum Enron fannst látinn í Bens bifreið sinni árið 2002 eftir að hafa framið sjálfsmorð í kjölfar hruns Enron. Árið 2005 var síðan gerð heimildarmynd sem byggði á bókinni sem hefur m.a. verið sýnd í Ríkissjónvarpinu. Borgarleikhúsið hyggst sýna leikritið Enron næsta vetur undir leikstjórn Stefáns Jónssonar.
8. Crisis Economics: A Crash Course in the Future of Finance eftir Nouriel Roubini og Stephen Mihm
Bandaríski hagfræðiprófessorinn Nouriel Roubini fékk viðurnefnið Doktor Dómsdagur eftir að hann hafði spáð fyrir um heimskreppuna sem enn sér ekki fyrir endann á. Í annarri bók "Crisis Economics" sem Roubini skrifaði og er fyrri útgáfa þessarar bókar benti hann á að efnahagskrísur eru ekki einungis fyrirsjáanlegar heldur ætti að vera hægt að forðast þær flestar. Fjallar hann um efnahagskrísur í Thaílandi, Mexíkó, Argentínu og Indónesíu. Vandamálið nú sé að ríkisstjórnir séu að endurfjármagna skuldir með því að taka á sig auknar skuldir til að bjarga fjármálageiranum. Líkt og Reinhart og Rogoff benda á í bók sinni This time is different: Eight centuries of Folly þá telja þeir Roubini og Stephen Mihm að Bandaríkin gætu lent í verðhjöðnun líkt og gerðist í Japan eftir árið 1990. Núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum hafi ekki lært af sögunni. Þeir Roubini og Mihm fjalla í bókinni um hagfræði og fjármál á skiljanlegan hátt.
9. Random Walk Down Wall Street: The Time-Tested Trategy of Successful Investing eftir Burton G. Malkiel
A Random Walk Down Wall Street kom fyrst út árið 1973 og árið 2003 kom endurbætt áttunda útgáfa bókarinnar út. Hún er ein þekktasta bók á sviði eignastýringar og ómissandi eign þeirra sem vilja ná árangri við fjárfestingar.
Í bókinni fjallar Malkiel um æviskeiðakenninguna og áhættugreiningu í tengslum við hana í því skyni að byggja upp eignir til framtíðar. Að auki er í bókinni fjallað um hugtakið skilvirkan markað og mismunandi form hans. Malkiel kom til Íslands árið 2005 og hélt erindi á vorfundi Eignastýringar Íslandsbanka það ár. Bókin hefur verið vinsæl sem kennsluefni í mörgum háskólum í heiminum sem kenna viðskiptafræði.
10. Rich Dad Poor Dad: What the Rich Teach Their Kids About Money - That the Poor and the Middle Class Do Not! eftir Robert Kiyosaki og Sharon Lechter
Þessi bók kom fyrst út árið 2000 og hefur verið metsölubók æ síðan. Kom síðan út í íslenskri þýðingu árið 2002. Skyldulesning fyrir alla áhugamenn um fjárhagslega heilsu. Eitt megin inntakið í bókinni er það að flestir huga að því að spara fyrir sjálfan sig þegar þeir hafa borgað alla reikninga. Þá verður oft lítið eftir og ekkert verður úr sparnaðinum.
Bókin er sett upp sem saga af uppvexti Kiyosaki á Hawaí. Faðir hans er íhaldssamur háskólaprófessor sem telur það farsælast fyrir Kiyosaki að fara í skóla, ná sér í góða menntun og fá gott starf hjá ríkinu líkt og hann hafði gert. Síðan er faðir vinar Kiyosaki sem rekur sín eigin fyrirtæki og vinnur fyrir sjálfan sig. Hann kennir Kiyosaki hvernig hann eigi að stjórna fjármálum sínum með því að koma sér upp fyrirtækjum, eignast fasteignir, listaverk, verðbréf og allt annað sem gefi af sér tekjur. Láta peningana vinna fyrir sig.

