
Íslandsbanki og Opni Háskólinn í Háskólanum í Reykjavík bjóða upp á fjármálafræðslu.
Markmið námskeiðsins er að veita ráðleggingar um flest sem snýr að fjármálum fjölskyldunnar.
Farið verður ítarleg í Meniga, byltingarkennt heimilisbókhald Íslandsbanka. Meniga lærir sjálfvirkt á þitt neyslumynstur og aðstoðar við áætlanagerð, markmiðasetningu, sparnaðarleiðir, neyslugreiningu og samanburð við neyslu annarra notenda Meniga.
Námskeiðin eru haldin í Opna háskólanum í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, og eru öllum opin og án endurgjalds. Hvert námskeið stendur frá klukkan 17 til 20.
Leiðbeinandi er Þór Clausen, M.Sc. í fjármálum, ásamt ráðgjöfum frá Íslandsbanka.
Námskeiðahaldi er lokið í bili.
Viðskiptavinir Íslandsbanka lýstu þeirri skoðun sinni að bankinn eigi að bjóða upp á fjármálafræðslu fyrir einstaklinga. Þess vegna býður Íslandsbanki upp á fjármálanámskeið í samstarfi við Opna háskólann í Háskólanum í Reykjavík.
Allt frá árinu 2005 hafa námskeiðin reglulega verið í boði og eru þátttakendur farnir að skipta þúsundum enda hefur verið nánast fullbókað á hvert námskeið. Námskeiðin hafa einnig verið haldin á landsbyggðinni, svo sem í Vestmannaeyjum, Selfossi, Egilsstöðum, Reyðarfirði, Húsavík, Akureyri og Reykjanesbæ.