Íslandsbanki

Greiðslukort

Greiðslukort geta verið af ýmsum toga og úrval þeirra er orðið mjög fjölbreytt. Það er því full ástæða til að kynna sér nánar eiginleika og kosti mismunandi greiðslukorta. Helsti aðgreiningarþátturinn er skiptingin á milli debetkorta og kreditkorta.

Debetkort eru tengd bankareikningi með innstæðu/úttektarheimild á meðan kreditkort eru tengd úttektarreikningi og skilgreindri úttektarheimild. Með öðrum orðum þá eru debetkort að vinna með peninga sem við eigum á meðan kreditkort vinna með peninga sem við fáum að láni og borgum til baka síðar, yfirleitt um hver mánaðamót.

Nánar um greiðslukort

Helstu aðilar á kortamarkaði

Útgáfuaðilar eru þeir sem gefa út kort til viðskiptavina sinna, þ.e. korthafa. Fyrst og fremst eru það viðskiptabankar og sparisjóðir sem gefa út greiðslukort á Íslandi, auk Kreditkorts.

Greiðslukortafyrirtæki eru með leyfi til að gefa út greiðslukort fyrir hönd útgefenda. MasterCard og Maestro kort eru gefin út af Borgun, Visa og Visa Electron eru gefin út af Valitor og American Express eru gefin út af Kreditkorti.

Færsluhirðar gera samninga við verslanir og aðra söluaðila og gera þeim kleift að móttaka greiðslukort. Færsluhirðar sjá einnig um uppgjörsupplýsingar á milli kortaútgefenda og korthafa. Færsluhirðar á Íslandi eru Borgun, Valitor og Kortaþjónustan.

Korthafar eru síðan einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir sem nota greiðslukort til daglegra nota.