Umsókn um greiðslumat vegna sértækrar skuldaaðlögunar
Umsókn verður send á uppgefið netfang. Umsókninni þarf að skila útfylltri og undirritaðri í næsta útibú Íslandsbanka ásamt fylgigögnum.
Þau gögn sem þarf að skila inn vegna umsóknarinnar eru:
- Skattskýrsla síðustu 3ja ára ásamt álagningarseðli, staðfest af skattayfirvöldum eða löggiltum endurskoðanda (Netskil-veflykill).
- Útprentun frá innheimtumanni Ríkissjóðs um skuldastöðu, fæst hjá Tollstjóranum í Reykjavík og sýslumönnum.
- Launaseðlar/lífeyrir/bætur síðustu sex mánaða.
- Afrit gagna sem gefa upplýsingar um meðlag, barnabætur, húsaleigutekjur, húsaleigubætur og aðrar tekjur.
- Afrit af síðasta greiðsluseðli allra lána og ógreiddra reikninga umsækjanda sem eru hjá öðrum lánastofnunum/kröfuhöfum en Íslandsbanka.
- Afrit af greiðsluáætlun úr greiðsluþjónustu við banka eða sparisjóði (aðra en Íslandsbanka).
- Yfirlit yfir rað- og fjölgreiðslur kreditkorta.
- Veðbókavottorð fasteigna (bankinn getur útvegað)
- Staðfesting á atvinnumissi eða lækkun launa.
- Ef um skilnað er að ræða þarf skilnaðar- eða fjárskiptasamning staðfestan af sýslumanni.
