Greiðsluerfiðleikar
Greiðsluerfiðleikaferli
- Viðskiptavinur skilar inn gögnum og umsókn vegna greiðsluerfiðleika
- Framkvæmt er greiðslumat og gerð tillaga að úrlausn
- Greiðsluerfiðleikanefnd yfirfer tillögu til að tryggja að samræmis sé gætt við afgreiðslu greiðsluerfiðleikamála
- Farið yfir niðurstöður með viðskiptavini. Mikilvægt er að viðskiptavinur sé sáttur og treysti sér til að standa undir þeirri greiðslubyrði sem felast í úrræðunum
Greiðsluerfiðleikanefnd
Nefndin fær til afgreiðslu öll mál sem fara í greiðsluerfiðleikamat, ásamt öðrum greiðsluerfiðleikamálum einstaklinga sem útibú leggja fyrir nefndina.
Nefndin getur heimilað vaxtagreiðslur, lengingar í lánum, skuldbreytingarlán og aðrar skilmálabreytingar m.a. í samræmi við úrræði íbúðalánasjóðs.
Umboðsmaður viðskiptavina hjá Íslandsbanka
Hjá Íslandsbanka hefur um árabil verið starfandi umboðsmaður viðskiptavina og er málum einkum vísað til hans í eftirfarandi tilvikum:
- Þegar viðskiptavinur sem lent hefur í verulegum greiðsluerfiðleikum telur sig ekki fá eðlilega úrlausn sinna mála
- Þegar viðskiptavinur er í viðskiptum við fleiri en eitt útibú
- Þegar um er að ræða viðkvæm eða vandmeðfarin mál
- Útibú eða greiðsluerfiðleikanefnd getur vísað málum til umboðsmanns viðskiptavina
Að öllu jöfnu skal framkvæma greiðsluerfiðleikamat áður en vísað er til umboðsmanns viðskiptavina.
Umboðsmaður skuldara
Málum er einkum vísað til Umboðsmanns skuldara þegar skuldbindingar eru við fleiri lánastofnanir.
Umboðsmaður skuldara veitir endurgjaldslausa fjárhagsráðgjöf og aðstoðar við gerð greiðsluáætlana, möguleg úrræði og býður aðstoð í að semja við lánardrottna, ef þess er þörf.
