Sértæk úrræði
Sértækum úrræðum er beitt til viðbótar við hefðbundin úrræði þegar um verulegan greiðsluvanda er að ræða að undangengnu greiðslumati. Hér að neðan er hægt að senda inn umsókn um greiðslumat vegna sértækrar skuldaaðlögunar.
Greiðslumat lagt fyrir greiðsluerfiðleikanefnd
Mikilvægur þáttur í greiðsluerfiðleikaferlinu er mat á aðstæðum hvers og eins. Starfandi er sérstök greiðsluerfiðleikanefnd sem fær til afgreiðslu öll mál sem fara í greiðslumat ásamt öðrum greiðsluvandamálum einstaklinga sem útibú leggja fyrir nefndina.
Skuldaaðlögun
Ef þú býrð við skuldir umfram greiðslugetu þá hvetjum við þig til að koma í næsta útibú og ræða við ráðgjafa um möguleg úrræði í stöðunni. Skuldaaðlögun er eitt af þeim úrræðum sem við bjóðum viðskiptavinum okkar sem eru í þessari stöðu.
Frestun greiðslna á húsnæðislánum
Hægt er að grípa til sértækra úrræða sem fela í sér annars vegar tímabundna frestun á afborgun höfuðstóls og hins vegar frestun á bæði afborgunum höfuðstóls og vaxtagreiðslum í allt að 12 mánuði. Frestun á greiðslum getur komið til greina hvort sem um er að ræða íslensk eða erlend húsnæðislán.
Sérstök úrræði vegna sölutregðu eigna
Úrræði fyrir viðskiptavini sem hafa keypt húsnæði en ekki tekist að selja eldri eignina.
Lenging lána til lengri tíma en hefðbundinna 40 ára
Tilgangurinn með lengingu til lengri tíma en hefðbundins hámarks lánstíma húsnæðislána er að lækka greiðslubyrðina þannig að viðskiptavinir séu færari um að standa skil á greiðslum.
Greiðsluaðlögun ríkisins
Helstu upplýsingar um það ferli sem tekur við þegar einstaklingur óskar eftir nauðasamningum til greiðsluaðlögunar.
