Fjármálin mín

Tímabundin opnun séreignarsparnaðar

Einstaklingar sem eiga séreignasparnað og eru 60 ára og yngri mega nú tímabundið taka út séreignarsparnaðinn sinn.

Alþingi samþykkti á árinu 2009 breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Með breytingunni var heimiluð úttekt á séreignarsparnaði til rétthafa yngri en 60 ára. Heimildin var fyrst sett með lögum nr. 130/2009, lögum nr. 164/2010 og lögum 122/2011. Hefur heimildin verið framlengd með lögum nr. 704/2011 og gildir nú frá 1. janúar 2012 til 1. október 2012. Heimilt er á tímabilinu að hefja útborgun innstæðu séreignarsparnaðar rétthafa, ásamt vöxtum, að fjárhæð sem þann 1. október 2011 nemur samanlagt allt að 6.250.000 kr. Skal sú fjárhæð greiðast út með jöfnum mánaðarlegum greiðslum á 15 mánaða tímabili, eða 416.667 kr. á mánuði fyrir skatt. Óski viðskiptavinur eftir lægri mánaðargreiðslu en kr. 416.667 er það hægt, en greiðslutímabil er aldrei lengra en 15 mánuðir. Við ákvörðun fjárhæðar rétthafa til útborgunar skal draga frá hámarksfjárhæð, þ.e. allt að 6.250.000 kr., samanlagða fjárhæð þess séreignarsparnaðar sem þegar hefur verið greiddur út á grundvelli ákvæðisins eins og það hljóðaði fyrir 1. október 2011. Greiddur er tekjuskattur af upphæðinni.

Greitt er út í byrjun hvers mánaðar og er umsóknarfrestur til 20. hvers mánaðar þar á undan. Síðasti umsóknardagur er 30. september 2012. Þeir sem þegar hafa sótt um útgreiðslu séreignarsparnaðar samkvæmt eldri heimild og vilja gera breytingar í samræmi við nýja heimild þurfa að sækja um breytt greiðslufyrirkomulag með nýrri umsókn.

Skila þarf inn skriflegri umsókn um útgreiðslu í næsta útibú Íslandsbanka eða til VÍB Kirkjusandi.

Spurt og svarað

Get ég hætt við úttektarferlið eftir að það er hafið?
Já, það er hægt. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið lifeyrir@islandsbanki.is og óska eftir því.
Hvernig verður útgreiðslu háttað ef inneign er lægri en kr. 6.250.000?

Í slíkum tilfellum styttist greiðslutíminn hlutfallslega.

Dæmi:
Sótt er um úttekt að heildarfjárhæð kr. 1.000.000. Mánaðarleg útgreiðsla er þá kr. 416.667 í tvo mánuði og eftirstöðvarnar, kr. 166.666, eru greiddar út þriðja mánuðinn. Athugið að greiða þarf tekjuskatt af þessari upphæð og því verða útborgaðar fjárhæðir lægri, sem nemur tekjuskattsgreiðslunum.

Hvað verður um sparnaðinn ef ég verð gjaldþrota?

Lífeyrissparnaður er lögvarinn við gjaldþrot, sem þýðir að kröfuhafar geta ekki gengið í sparnaðinn við gjaldþrot.

Ef einstaklingar hafa tekið út lífeyrissparnaðinn þá geta kröfuhafar gert tilkall til þeirra fjármuna og þá eru menn bæði gjaldþrota og búnir að missa lífeyrissparnaðinn.

Hvenær þarf að vera búið að sækja um?
Fyrir 20. hvers mánaðar til að fá greiðslu næstu mánaðarmót þar á eftir. Athugið að endanlegur umsóknarfrestur er 30. september 2012.
Hve mikið er hægt að fá greitt út mánaðarlega?
Að hámarki er hægt að fá kr. 416.667 kr. greiddar út mánaðarlega. Greiða þarf tekjuskatt af þeirri upphæð og því verður útborguð fjárhæð lægri, sem nemur tekjuskattsgreiðslunni.
Er úttekt vegna tímabundinnar heimildar bundin við einn vörsluaðila eða get ég tekið út hjá fleiri vörsluaðilum ef ég á viðbótarlífeyrissparnað hjá fleiri aðilum?
Hámark úttektar vegna tímabundinnar heimildar er samanlagt kr. 6.250.000 óháð því hvort sú upphæð er í vörslu hjá einum eða fleiri vörsluaðilum. Bent skal á að einungis er hægt að fá greitt frá einum vörsluaðila í einu. Athygli er vakin á því að við ákvörðun fjárhæðar til útborgunar skal draga frá samanlagða fjárhæð þess viðbótarlífeyrissparnaðar sem þegar hefur verið greiddur út vegna þessa ákvæðis.