Beint á efnisyfirlit síðunnar
Fjármálin mín

Önnur lán

Einstaklingar með erlend lán, sem tekin voru fyrir 15. október 2008 og eru með þau í skilum, geta nú sótt um höfuðstólslækkun og um leið breytt lánum sínum yfir í íslenskar krónur miðað við sölugengi Seðlabanka Íslands þann 29. september 2008. Lækkunin er að meðaltali um 25% m.v. stöðu gengis 30. apríl 2010 en hún fer eftir þróun gengis á hverjum degi og myntsamsetningu hvers láns. Mest er lækkunin í japönskum jenum eða ríflega 30% m.v. gengi þann dag (30.04.2010).

Lögð er áhersla á að þessi lausn hentar sumum viðskiptavinum betur en öðrum og að hver og einn verði að vega og meta kosti og ókosti hennar.

Almenn erlend lán

Lánin breytast úr erlendri mynt í óverðtryggð eða verðtryggð skuldabréfalán í íslenskum krónum. Skilmálar nýrra skuldabréfalána, svo sem lánstími þeirra og kjör, eru misjafnir og taka m.a. mið af greiðslugetu viðskiptavina og undirliggjandi tryggingum.

Spurt og svarað

Hversu mikil verður lækkunin?
Miðað er við lækkun á höfuðstól þannig að hann sé svipaður og hann var 29. september 2008. Lækkun erlendra lána verður um 25% að meðaltali miðað við stöðu gengis 30. apríl 2010.
Er höfuðstólslækkun erlendra lána skattskyld?
Samkvæmt lögum nr. 104/2010 frá 2. júlí s.l. er lækkun af þessu tagi ekki skattskyld hafi hún fengist á tekjuárunum 2009-2011.
Hvað kostar þetta?
Kostnaður fyrir viðskiptavini sem vilja skuldbreyta sínu láni er kr. 5.500 að viðbættum útlögðum kostnaði ef um hann er að ræða, eins og t.d. þinglýsingargjaldi. Ekki verður innheimt lántökuþóknun en lántaka ber að greiða stimpilgjöld skv. gildandi gjaldskrá hjá Sýslumönnum.
Fyrir hverja er þessi lausn hugsuð?
Þessi lausn stendur öllum einstaklingum til boða sem eru með erlend lán tekin fyrir 15. október 2008. Hins vegar verður hver og einn að vega og meta kosti þess að breyta láni sínu með þessum hætti. Þar sem þetta úrræði hefur í för með sér lægri höfuðstól láns er líklegt að hún komi þeim mest til góða sem hyggjast selja undirliggjandi eign sína eða greiða lánið upp á næstu misserum. Athugið að lagt er mat á hverja umsókn en bankinn áskilur sér rétt til að hafna umsókn í samræmi við lána- og vinnureglur bankans.
Eru viðskiptavinir að fyrirgera rétti sínum ef erlend lán verða dæmd ólögleg?
Nei, með því að nýta sér úrræði Íslandsbanka til höfuðstólslækkunar láns í erlendum myntum hefur lántaki ekki fyrirgert mögulegum betri rétti sínum, komist Hæstiréttur Íslands að þeirri niðurstöðu að erlend lán bankans, samkvæmt samskonar skuldaskjölum, séu ólögleg.