Greiðslujöfnun verðtryggðra fasteignaveðlána
Í dag getur þú lækkað greiðslubyrði á verðtryggðu húsnæðisláni um 12%.
Greiðslujöfnun verðtryggðra húsnæðislána gerir þér kleift að létta greiðslubyrðina tímabundið á meðan niðursveiflan gengur yfir íslenskt efnahagslíf.
- Frestar afborgunum að hluta
- Greiðslubyrði tekur mið af greiðslujöfnunarvísitölu í stað vísitölu neysluverðs
- Greiðslubyrði helst betur í takt við greiðslugetu flestra
- Hægt að segja upp síðar á lánstíma (þarf að gera 10 dögum fyrir næsta gjalddaga)
Greiðslubyrðin tekur mið af greiðslujöfnunarvísitölu sem er líklegri til að henta greiðslugetu flestra betur heldur en að áfram sé tekið mið af neysluverðsvísitölu. Lánið er eftir sem áður bundið vísitölu neysluverðs og breytist höfuðstóll lánsins í samræmi við hana.
Greiðslujöfnunarvísitalan er samsett úr launavísitölu sem vegin er með atvinnustigi sem þýðir að greiðslubyrðin lækkar ef laun lækka og/eða atvinnuleysi eykst í þjóðfélaginu.
Meðan útreikningur skv. greiðslujöfnunarvísitölu er lægri en útreikningur skv. vísitölu neysluverðs safnast mismunurinn á sérstakan jöfnunarreikning og hækkar með því höfuðstól lánsins. Ef útreikningur skv. greiðslujöfnunarvísitölu verður síðan hærri þá greiðist niður af jöfnunarreikningnum og lækkar með því höfuðstól lánsins. Sé enn staða á jöfnunarreikningnum við lok upphaflegs lánstíma þá kemur það til greiðslu með lengingu lánsins.
Skoða þarf hvert tilvik fyrir sig og hvetjum við viðskiptavini til að hafa samband við ráðgjafa í viðskiptaútibúi sínu.
Kostir
- Léttari greiðslubyrði á erfiðum tímum í efnahag Íslendinga
- Greiðslubyrði líklegri til haldast betur í hendur við greiðslugetu þína til framtíðar
- Ef þú greiðir áfram samkvæmt greiðslujöfnunarvísitölu þrátt fyrir að neysluverðsvísitalan verði hagstæðari þá styttist lánstíminn aftur að upphaflegum lánstíma
- Hægt að segja greiðslujöfnuninni upp hvenær sem er
Ókostir
- Möguleiki á að lán lengist en þó aldrei lengur en sem nemur þremur árum af upprunalegum lánstíma
- Lengist lánstíminn felur það í sér hærri kostnað í formi vaxta og verðbóta
- Eignarmyndun í húsnæði getur orðið hægari til skamms tíma
Dæmi um greiðslujöfnun
Verðtryggt húsnæðislán að upphæð 20 milljón kr. þann 1.1.2008
- Lánstími 40 ár
- Vextir 5,10%
- Afborgun fyrir greiðslujöfnun = 133 þúsund kr.
- Afborgun eftir greiðslujöfnun = 117 þúsund kr.
- Mismunur = 16 þúsund kr.
Skilyrði fyrir greiðslujöfnun verðtryggðra húsnæðislána er að lán sé í skilum. Til að greiðslujöfnun taki gildi þarf umsókn að hafa borist a.m.k. 12 dögum fyrir gjalddaga. Dæmi: Fyrir lán með gjalddaga á fyrsta degi mánaðar þarf umsókn um greiðslujöfnun að hafa borist fyrir 20. dag mánuðar á undan.
