Beint á efnisyfirlit síðunnar
Fjármálin mín

Greiðslujöfnun erlendra húsnæðislána

Lausn sem lækkar og jafnar greiðslubyrðina.

Með greiðslujöfnun erlendra húsnæðislána lækkar þú greiðslubyrðina og eyðir óvissunni um mánaðarlega greiðslubyrði lánsins með jafnari upphæð um hver mánaðamót.

  • Greiðir sömu greiðslu í íslenskum krónum og gert var á gjalddaga 2. maí 2008
  • Greiðsla breytist í takt við greiðslujöfnunarvísitöluna*
  • Mismunurinn færist aftan á lánstímann og lengir eða styttir hann eftir atvikum

Lengd lánstíma breytist í takt við gengi íslensku krónunnar

Í stað þess að hafa sveiflur í greiðslubyrði um hver mánaðamót vegna þróunar á gengi, þá færist sú sveifla yfir á lánstímann sem getur þá lengst eða styttst eftir því hvernig gengi íslensku krónunnar þróast. Styrking krónunnar felur í sér styttri lánstíma, veiking krónunnar felur í sér lengri lánstíma.

Þess vegna höfum við oft kallað lausnina "teygjulán", en teygjan strekkist tímabundið við veikingu krónunnar en gengur svo til baka við styrkingu. Það er mat margra greiningaraðila (t.d. Alþjóðagjaldeyrissjóðsins) að núverandi gengi krónunnar sé veikara en gera megi ráð fyrir að sé jafnvægisgengi til lengri tíma litið. Styrkist krónan og nái lengra tíma jafnvægi í því gildi getur mögulega sú staða komið upp að lánstíminn styttist frá því sem upphaflega var gert ráð fyrir.

* Greiðslujöfnunarvísitala er reiknuð og birt á vef Hagstofu Íslands

Kostir

  • Jafnari greiðslubyrði til frambúðar
  • Lægri greiðslubyrði heldur en núverandi afborganir sem hafa hækkað vegna veikara gengi íslensku krónunnar.
  • Greiðslubyrði gæti lækkað á milli næstu mánaða gangi spár um þróun greiðslujöfnunarvísitölu eftir
  • Styrkist gengi íslensku krónunnar greiðist höfuðstóll lánsins hraðar niður en upprunalega var gert ráð fyrir
  • Hægt að segja greiðslujöfnun upp hvenær sem er

Ókostir

  • Möguleiki á að lán lengist en þó aldrei lengur en sem nemur þremur árum af upprunalegum lánstíma
  • Gengisáhætta. Höfuðstóll lánsins greiðist hægar niður (a.m.k. til að byrja með) og gæti því hækkað meira en ella veikist gengi íslensku krónunnar.
  • Vaxtaáhætta. Lengist lánstíminn felur það í sér hærri vaxtakostnað en ella, auk þess gætu breytilegir vextir myntanna hækkað á tímabilinu.
  • Styrking krónunnar skilar sér ekki í lægri greiðslubyrði. Þess í stað styttist lánstíminn.

Skilyrði fyrir greiðslujöfnun erlendra húsnæðislána er að lán sé í skilum. Bankinn áskilur sér rétt til að endurskoða greiðslujöfnunarlán á 5 ára fresti en að öðru leyti gilda almennar lánareglur. Til að greiðslujöfnun taki gildi þarf umsókn að hafa borist a.m.k. 12 dögum fyrir gjalddaga. Dæmi: Fyrir lán með gjalddaga á fyrsta degi mánaðar þarf umsókn um greiðslujöfnun að hafa borist fyrir 20. dag mánuðar á undan.