Endurútreikningur bílalána
Íslandsbanki hefur í ljósi niðurstöðu Hæstaréttar unnið að því að endurreikna bílalán, kaupleigusamninga og einkaleigusamninga í erlendum myntum. Þessari vinnu er nú lokið að undanskildum þeim einkaleigusamningum sem eru enn í gangi. Enn er verið að vinna að endurútreikningi þeirra samninga.
Hér fyrir neðan eru algengar spurningar sem vakna hjá viðskiptavinum vegna þessa endurútreikninga og svör við þeim.
Spurt og svarað
Endurútreikningar vegna uppgreiddra lána (annar áfangi) og uppgreiddra yfirtekinn lána (hluti þriðja áfanga) er nú aðgengilegir á ergo.is.
Yfirtekin lán, sem enn eru í gangi, hjá þeim aðilum sem ekki hafa sett sig í samband við Ergo fyrir 30. maí 2011 verður breytt einhliða þann dag.
Sú fjárhæð miðar við það að allir reikningar vegna útlagðs kostnaðar (t.d. tryggingaiðgjöld, bifreiðagjöld) séu greiddir og að kostnaðarliðir s.s. vegna umráðatilkynninga og skjalagerðar séu greiddir. Ef eitthvað slíkt er ógreitt þá dregst það frá þeirri upphæð sem kemur til endurgreiðslu.
Ef þú ert með uppgreitt lán eða uppgreitt yfirtekið lán þá getur þú skráð þig inn á ergo.is og séð hvaða áhrif dómurinn hefur á viðkomandi lán. Þetta á eingöngu við ef um ofgreiðslu er að ræða. Þar þarftu jafnframt að veita upplýsingar um eftirfarandi:
- Gefa upplýsingar um bankareikning og greiðslan verður þá lögð inn á reikning hjá þér
- Skrá inn það netfang sem gögn vegna endurútreikninga skulu berast til
Viðskiptavinur sér um að prenta út gögn sem honum berast í kjölfarið og undirritar þau og skilar til Ergo eða í eitthvert útibú Íslandsbanka. Einnig getur þú haft samband við ráðgjafa Ergo sem aðstoða þig við að ganga frá endurútreikningi.
Nú hafa einhliða breytingar í áfanga 1 verið framkvæmdar.
Einhliða breytingar vegna yfirtekinna lána, sem enn eru í gangi, verður breytt einhliða 30. maí 2011 hafi viðskiptavinur ekki sett sig í samband við Ergo fyrir þann tíma.
