Úrræði
Hér sérðu yfirlit yfir helstu úrræði sem hafa staðið til boða hjá bankanum og nánari upplýsingar um þau úrræði sem enn eru opin til umsóknar.
Mörg úrræðanna vinna saman og það er til lausnir við flestum aðstæðum. Við hvetjum því alla til að kynna sér úrræðin vel, tala við ráðgjafa í næsta útibúi bankans og fara yfir stöðuna.
Húsnæðislán
- Endurútreikningur erlendra húsnæðislána - Höfuðstóllinn lækkar í flestum tilfellum um 25-40%. Umsóknarfrestur rann út 15. september 2011.
- 110% aðlögun skulda - Leið til að lækka fasteignalánið ef það er hærra en 110% af verðmæti eignar. Umsóknarfrestur rann út 1. júlí 2011.
- Greiðslujöfnun verðtryggðra / erlendra húsnæðislána - Hentar þeim sem vilja létta greiðslubyrðina tímabundið.
Önnur úrræði / Sértækar lausnir
- Frestun greiðslna á húsnæðislánum - Tímabundið úrræði sem hentar tekjulausum einstaklingum.
- Sértæk skuldaaðlögun - Varanleg lausn sem hentar þeim sem búa við skuldir umfram greiðslugetu.
- Sölutregða eigna - Úrræði sem hentar þeim sem hafa keypt húsnæði en ekki tekist að selja eldri eignina.
- Lenging lána til lengri tíma en hefðbundinna 40 ára - Leið sem lækkar greiðslubyrðina.
- Greiðsluaðlögun ríkisins - Fyrir þá sem eru í verulegum erfiðleikum, hér óskar einstaklingur eftir nauðasamningum til greiðsluaðlögunar.
- Tímabundin opnun séreignasparnaðar - Einstaklingum er heimilt að sækja um útgreiðslu á séreignarsparnaði á tímabilinu 1. október 2011 til 30. júní 2012.
Bílalán
- Endurútreikningur erlendra bílalána - Nánari upplýsingar um framkvæmd endurútreikningsins.
