Foreldrar og börn
13.02.2012
Þór ClausenÍ rannsókn, sem breska fjármálatímaritið Moneywise framkvæmdi nýlega á meðal foreldra barna í Bretlandi, kom ýmislegt áhugavert í ljós í sambandi við fjármál fjölskyldunnar.
- 26% foreldra, fimm ára barna og eldri, finnst þeir vera vel í stakk búnir til að kenna börnum sínum um fjármál heimilisins.
- 80% af foreldrum finnst að skólakerfið eigi sem fyrst að kenna börnum grunnatriði fjármála fjölskyldunnar, þar á meðal hvernig á að áætla og spara.
- Yfir 70% af foreldrum segjast hafa rætt við unglinga sína um notkun greiðslukorta, en tölur sýna einnig að færri en 44% unglinganna segja að foreldrarnir hafi í raun rætt við þá.
- Um helmingur foreldra viðurkenna að þeir setja ekki gott fordæmi fyrir börn sín um hvernig eigi að haga sér vel í fjármálum.
- 70% foreldra segja að unglingum þeirra finnst það sjálfsagt að þeir fái peninga fyrir hverju sem er, hvenær sem er.
- 57% af foreldrum segja að þrátt fyrir að unglingar þeirra séu komnir í skóla (16-18 ára), þá skilja þeir ekki virði peninga.
Efni og innihald greina endurspegla ekki mat eða skoðanir Íslandsbanka heldur einungis þeirra aðila sem þær skrifa.
