Beint á efnisyfirlit síðunnar
Fjármálin mín

Fimm atriði til að hafa í huga við bifreiðakaup

11.01.2012

Þór Clausen

Fyrir mörg okkar er það að eiga bifreið nauðsyn. Við treystum á hana að koma okkur á leiðarenda hvert sem haldið er. Það er töluverð fjárfesting að kaupa bifreið og við höfum öll okkar skoðanir þegar við veljum réttu bifreiðina. Mikið er um framboð af bifreiðum um þessar mundir og við þurfum að finna réttu blönduna af því sem okkur langar í og því sem við höfum efni á og þurfum. Hér eru fimm atriði sem við skulum hafa í huga þegar fjárfest er í bifreið.

  1. Ef þið takið bílalán verið þá viss um að þið ráðið við afborganirnar
  2. Kaupið notaða bifreið frekar en nýja þar sem afskriftin á fystu tveimur árunum er 25% - 40%
  3. Kaupið bifreið sem nýtist vel fjölskyldunni
  4. Athugið að ýmis kostnaður fylgir bifreiðaeign, t.d. tryggingar, bifreiðagjölg, endsneytis- og viðhaldskostnaður
  5. Borgið út í bifreiðinni ef þið ráðið við það. Það lækkar láns- og vaxtakostnað
Til baka

Efni og innihald greina endurspegla ekki mat eða skoðanir Íslandsbanka heldur einungis þeirra aðila sem þær skrifa.