„Er það jólahjól?"
27.12.2011
Þór ClausenEfni og innihald greina endurspegla ekki mat eða skoðanir Íslandsbanka heldur einungis þeirra aðila sem þær skrifa.
Nú eru jólin að bresta á og þessi stutta grein er svona minnispunktur til okkar allra um raunverulegan boðskap jólanna. Ég bið ykkur um að spyrja ykkur að eftirfarandi spurningum og vænti þess að þær muni sitja ykkur í minni til næstu jóla, eða það vona ég.
- Eyddi ég of miklu í jólagjafir?
- Fjárfesti ég í nytsamlegum og góðum gjöfum, án tillits til verðs?
- Gaf ég gjafir til þeirra sem virkilega þörfnuðust þeirra?
- Hvernig verður fjárhagsstaðan eftir jólin?
Vonandi fá þessar spurningar ykkur til að hugsa um jólin í aðeins öðru ljósi. Raunverulegan tilgang þeirra og mikilvægi þess að missa sig ekki alveg í gjafaflóði, mat og drykk. Hófsemi er dyggð var einhvers staðar ritað og það á svo sannarlega líka við jólin.
Gleðileg jól!
Til bakaEfni og innihald greina endurspegla ekki mat eða skoðanir Íslandsbanka heldur einungis þeirra aðila sem þær skrifa.
