Beint á efnisyfirlit síðunnar
Fjármálin mín

„Og svo koma jólin"

20.12.2011

Þór Clausen

Efni og innihald greina endurspegla ekki mat eða skoðanir Íslandsbanka heldur einungis þeirra aðila sem þær skrifa.

Í síðustu viku var tæpt á mikilvægi bókhalds og greiningar á kostnaði jólanna og einnig var minnst á að þið getið sjálf sparað með ýmsu móti í undirbúningi þeirra.

Ódýrari jólakort

Hægt er að hanna heimatilbúin jólakort með miklu minni tilkostnaði. Börnin geta líka hjálpað til við að skreyta þau.

Gjafir úr eldhúsinu ykkar

Ekki er mælt með að gefnir séu hálfétnir ostar en falleg heimatilbúin ostakarfa, með heimatilbúinni sultu og skreytingum getur verið mjög falleg.

Ódýrar skreytingar

Ýmsar hugmyndir eru að ódýrum skreytingum á internetinu. Prófið að „googla" „Cheap or free Christmas decorations" og sjáið hvað mikið er í raun hægt að gera. Svo ýtir þetta undir góðar samverustundir fjölskyldunnar.

Ódýrar en hjartnæmar gjafir

Dýrt þarf ekki endilega að þýða fallegt og hjartnæmt. Það er hægt að gefa ódýrar gjafir af heilum hug. Kennið börnunum ykkar þetta og að vera þakklát fyrir allt sem þau fá.

 

Til baka

Efni og innihald greina endurspegla ekki mat eða skoðanir Íslandsbanka heldur einungis þeirra aðila sem þær skrifa.