
Nýr áheitavefur – hlaupastyrkur.is
Enn á ný verður hlaupið til styrktar góðum málefnum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Í ár verður áheitasöfnunin bæði einfaldari og miklu skemmtilegri en áður. Við höfum opnað nýja vefsíðu sem kallast hlaupastyrkur.is. Þar ættu allir sem ætla sér að safna áheitum að stofna aðgang til að vera með sýnilega áheitasöfnun. Þar verður hægt að hlaða inn myndum, vera með kynningu um sig og sitt áheitafélag og síðast en ekki síst búa til myndbandið sitt til að senda í tölvupósti eða á Facebook til vina og vandamanna.
Góðgerðarfélag
Hlauparinn velur sér góðgerðarfélag til að láta áheitið ráðstafast til. Með tilkomu áheitavefsins www.hlaupastyrkur.is er það von allra sem standa að hlaupinu að vefurinn verði til þess að söfnun áheita verði einfaldari og skemmtilegri í ár.
Myndbandið þitt sent frá hlaupastyrkur.is
Á vefnum www.hlaupastyrkur.is er hægt að útbúa skemmtilegt myndband til að kynna áheitasöfnunina. Hlaupari hleður inn andlitsmynd af sér, velur fígúru úr fríðum flokki búka sem eru til boða og sendir til vina og vandamanna í tölvupósti eða á Facebook. Þetta myndband mun svo fara eins og eldur um sinu milli vina og mun án nokkurs vafa vekja mikla athygli og kátínu og minna vini og vandamenn á að senda áheit.
Skráningarferlið:
Hlaupari skráir fyrst þátttöku sína á www.marathon.is, velur sér vegalengd, góðgerðarfélag og gengur frá formlegum upplýsingum svo hann skráist örugglega rétt inn í hlaupið. Þegar því er lokið fer hlauparinn inn á www.hlaupastyrkur.is smellir á „Nýskráning“ slær inn kennitöluna sína og þá sækir vefurinn skráningarupplýsingar hlauparans til maraþonsins.
Og þá hefst fjörið – hlauparinn hleður inn myndum, setur inn upplýsingar um sig og sinn hlaupaferil og sendir allt saman á Facebook,
Twitter eða í tölvupósti til vina og vandamanna.
Við hvetjum alla þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka til þess að láta sitt ekki eftir liggja, hlaupa til góðs og safna áheitum.