Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Vildarþjónusta

Vildarklúbbur

Viðskiptavinir í Vildarþjónustu Íslandsbanka geta safnað Íslandsbankapunktum með fjölbreyttum viðskiptum við bankann. Sækja þarf sérstaklega um að komast í Vildarklúbbinn. Reglulega eru tilboð í gangi fyrir meðlimi klúbbsins.

Tilboð

Svona safnar þú Íslandsbankapunktum

  • Aðild að Vildarþjónustu Íslandsbanka
  • Innlend kreditkortanotkun
  • Reglulegur sparnaður
  • Viðbótarlífeyrissparnaður
  • Bílafjármögnun hjá Ergo
  • Eignastýring eða Einkabankaþjónusta hjá VÍB

Svona notar þú Íslandsbankapunkta

  • Útborgun í peningum í febrúar ár hvert
  • Ferðaávísun MasterCard
  • Vildarpunktar Icelandair
  • Innborgun á verðtryggðan bundinn sparnað
  • Góðgerðarmál

Punktatafla

Gildir frá og með 22. júní 2010Punktaveiting
Kreditkortanotkun og aðild að Vildarþjónustu ÍslandsbankaSjá töflu neðar
Reglulegur sparnaður inn á Sparileið 36, 48 eða 6010-19.999 kr. á mánuði = 200 punktar
20-29.999 kr. á mánuði = 300 punktar
30.000 kr. eða meira á mánuði = 400 punktar
ViðbótarlífeyrissparnaðurVild/Námsvild = 100 punktar á mánuði
Gullvild = 150 punktar á mánuði
Platínum = 200 punktar á mánuði
Einkabankaþjónusta1.150 punktar á mánuði

Bílafjármögnun hjá Ergo

5.000 punktar fyrir ný bílalán ásamt sérkjörum á vöxtum.

Kreditkortanotkun og aðild að Vildarþjónustu Íslandsbanka

Gildir frá 1. apríl 2013
Upphæð (þús.)Vild/Námsvild punktar á mánuðiGullvild punktar á mánuðiPlatínum punktar á mánuði
20 - 49100150200
50 - 99200300400
100 - 149400500650
150 - 199600650950
200 - 2498001.0001.100
250 - 2991.1001.6002.000
300 - 3491.3202.0002.700
350 - 3991.8502.4003.000
400 - 4492.3002.9003.400
450 - 5002.7003.1503.700
500+2.9003.4004.300

Spurt og svarað

Hvað er Vildarklúbbur Íslandsbanka?
Vildarklúbburinn er fyrir viðskiptavini í Vildarþjónustu Íslandsbanka og safna meðlimir Vildarklúbbsins punktum fyrir að vera í fjölbreyttum viðskiptum við bankann. Þú þarft ekki að gera neitt nema að skrá þig.
Hvernig safna ég Íslandsbankapunktum?

Það eru margvíslegar leiðir til að safna Íslandsbankapunktum en þú þarft ekki að gera neitt aukalega. Þú færð punkta fyrir það eitt að vera í viðskiptum við Íslandsbanka, nota kreditkort Vildarklúbbsins og vera í fjölbreyttum viðskiptum við bankann og dótturfélög hans Ergó og VIB. Söfnunin fer stighækkandi eftir umfangi viðskipta þinna. Nánar um söfnun Íslandsbankapunkta í skilmálum Vildarklúbbsins.

Hvernig get ég fylgst með punktaeign minni?
Punktastöðu má ávallt sjá í Netbanka Íslandsbanka. Þar verður hægt að skoða yfirlit yfir uppsafnaða punkta. Einnig getur þú nálgast upplýsingar um punktastöðu í útibúi þínu eða í þjónustuveri Íslandsbanka í síma 440 4000.
Hvernig nota ég Íslandsbankapunktana?

Íslandsbankapunkta er hægt að innleysa með margvíslegum hætti í Netbanka Íslandsbanka, svo sem með árlegri endurgreiðslu. Einnig er hægt að auka virði punktana enn frekar með því að breyta þeim í ferðaávísun MasterCard, Vildarpunkta Icelandair, góðgerðarmál, óverðtryggðan bundinn sparnað eða vöruúttekt hjá samstarfsaðilum Vildarklúbbsins. Ferðaávísun MasterCard er bara fáanleg ef viðskiptavinur er með kreditkort frá MasterCard en Vildarpunkta Icelandair er hægt að fá óháð kortategund. Ferðaávísun gildir í tvö ár eftir að hún er keypt. Í stað þess að fá senda Ferðaávísun er einnig hægt að láta leggja andvirði hennar inn á MasterCard kreditkort, að því gefnu að búið sé að kaupa ferð með viðkomandi korti og að innan við þrír mánuðir eru liðnir frá því að ferðin var keypt. Vildarklúbburinn er tryggðarkerfi Íslandsbanka. Þú þarft að vera virkur viðskiptavinur í Vildarþjónustu Íslandsbanka til að geta innleyst punkta þína og kreditkort Vildarklúbbsins verður að vera í notkun. Þú innleysir Íslandsbankapunkta þegar þér hentar en endurgreiðslu í formi peninga er hægt að fá í febrúar ár hvert.

Hversu mikils virði eru Íslandsbankapunktarnir?
Virði Íslandsbankapunkta er sambærilegt við önnur fríðindakerfi en söfnunin er mun fjölbreyttari og hægt að safna punktum með fleiri leiðum en kreditkortanotkun. Virði Íslandsbankapunkta kemur í raun í ljós þegar þeim er ráðstafað því ávallt eru ákveðin tilboðskjör á punktainnlausn. Til dæmis gæti 60.000 Íslandsbankapunktum verið breytt í 34 þúsund kr. ferðaávísun, 35.000 Vildarpunkta Icelandair eða 32 þúsund kr. útborgun í peningum svo dæmi sé tekið. Ávallt verður hægt að fylgjast með virði Íslandsbankapunkta í Netbanka Íslandsbanka.
Fyrnast Íslandsbankapunktarnir mínir?
Ónýttir punktar fyrnast fjórum árum eftir að þeim er aflað en ávallt í lok hvers ár. Þannig munu punktar sem aflað er í júlí 2008 ekki fyrnast fyrr en 31. desember 2012. Einnig áskilur Íslandsbanki sér rétt til þess að taka til sín punkta ef engin hreyfing er á punktasöfnun þinni í meira en sex mánuði án sýnilegrar ástæðu. Þetta er vegna þess að þú safnar punktum fyrir það eitt að vera virkur viðskiptavinur Íslandsbanka og ef engin söfnun á sér stað yfir langan tíma þá er litið svo á að þú sért ekki lengur virkur viðskiptavinur.
Hvernig kreditkort fylgir Vildarklúbbnum?

Til þess að safna Íslandsbankapunktum fyrir innlenda kreditkortanotkun þá þarf að nota nýtt kort Vildarklúbbsins sem þú færð við skráningu. Kreditkortið safnar aðeins punktum Vildarklúbbsins en ekki öðrum fríðindum, svo sem ferðaávísun eða punktum hjá Icelandair. Ferðaávísun og punkta hjá Icelandair er hins vegar hægt að kaupa fyrir Íslandsbankapunkta. 50% afsláttur er veittur af árgjaldi.

Hvernig tryggingar eru á kreditkorti Vildarklúbbsins?

Tryggingar korta Vildarklúbbsins eru þær sömu og á öðrum sambærilegum kortum. Sem dæmi eru sömu tryggingar á bak við gullkort Vildarklúbbsins og annarra gullkorta. Almenn kreditkort eru með grunntryggingum, gullkort eru með góðum ferðatryggingum og platínumkort eru með víðtækum og öflugum ferðatryggingum. Nánari upplýsingar um ferðatryggingar kreditkorta má finna á vef Sjóvá.

Hvað ef ég hef safnað Vildarpunktum hjá Icelandair?
Þú heldur áfram að eiga þinn punktareikning hjá Icelandair. Eina breytingin er sú að í stað þess að safna Vildarpunktum Icelandair með kreditkortanotkun þinni þá safnast Íslandsbankapunktar í staðinn. Íslandsbankapunktum er síðan hægt að breyta í Vildarpunkta Icelandair. Munurinn er sá að í Vildarklúbbi Íslandsbanka safnar þú fyrst punktum og ákveður svo hvernig þú vilt ráðstafa þeim, allt eftir eigin hentugleika.
Hvað kostar að vera í Vildarklúbbi Íslandsbanka?
Ekki er tekið neitt gjald fyrir að vera í Vildarklúbbi Íslandsbanka en kreditkort klúbbsins ber árgjald. Þó er kortið ókeypis fyrsta árið og svo 50% afsláttur af árgjaldi eftir það fyrir þá sem eru í Vildarþjónustu Íslandsbanka.
Hvernig skrái ég mig í Vildarklúbb Íslandsbanka?
Þú getur skráð þig á vef Íslandsbanka, með því að hringja í þjónustuver í síma 440 4000 eða með því að hafa samband við þjónustufulltrúa þinn í útibúi Íslandsbanka.
Hvernig kemst ég í Vildarþjónustu Íslandsbanka?
Til þess að vera í Vildarþjónustu Íslandsbanka þarftu að vera með virkan launareikning og Netbanka hjá Íslandsbanka, auk annarra þjónustuþátta að eigin vali. Mökum nægir að uppfylla þessi skilyrði í sameiningu en geta þá ekki verið með bæði í Vildarklúbbnum með sinn hvorn punktareikninginn. Til þess að vera með eigin punktareikning þarf að uppfylla skilyrðin upp á eigin spýtur.
Hvað ef ég er ekki viðskiptavinur Íslandsbanka?
Vildarklúbburinn er aðeins fyrir viðskiptavini Íslandsbanka og því þarft þú að flytja bankaviðskipti þín til Íslandsbanka. Þú sækir um á vefnum og við sjáum um framhaldið.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Nei

Takk fyrir!

Ábending þín er móttekin